Nýliðar Vals og Hauka öttu kappi í Vodafonehöllinni í kvöld þar sem að munur þessara liða á tímabilinu kristallaðist í rústi Haukanna 60-92 en Valur er á botninum í deildinni með fall yfirvofandi ef þeim tekst ekki að taka til hendinni og Haukar eru að berjast um heimarétt í úrslitakeppninni.
Haukar byrjuðu leikinn með gríðarlegum yfirburðum og komust snemma í 2-12. Vörnin hjá þeim mjög góð og rann m.a. skotklukkan tvívegis út hjá Val. Helgi Björn Einarsson kom á óvart og skellti niður tveimur þristum fyrir Hauka. Leikhlutinn endaði 8-28 fyrir Hauka og voru Sigurður Þór Einarsson og Terrence Watson íburðarmiklir með 9 stig hvor.
Haukar slökuðu á klónni í öðrum leikhluta á meðan að Valsmenn brýndu sínar. Valsarar skelltu í pressuvörn sem virkaði vel og misstu Haukar boltann töluvert. Chris Woods vaknaði til lífsins eftir að hafa verið ósýnilegur í fyrsta leikhluta og skoraði 8 stig fyrir Val.
Bæði lið brutu mikið af sér sem kristallaðist í leikfléttu þar sem að Emil Barja hafði hugsanlega geta fengið dæmda á sig sóknarvillu fyrir ýtingu en Oddur Ólafsson lét sig detta full auðveldlega svo að dómarinn dæmdi ekkert. Emil var ekki sáttur við leikræna tilburði Odds og hrópaði að honum að hætta að láta sig detta eftir að hann hafði skorað. Í sömu andrá braut Helgi á Oddi og sendi hann á línuna þar sem að Valur voru komnir í bónus. Oddur var hinsvegar ennþá pirraður út í Emil og kastar boltanum í hann (alls ekki fast en án vafa viljandi) og uppskar fyrir vikið tæknivillu og sína fjórðu. Valur vann leikhlutann með 1 stigi og Haukar því ennþá með mikla forustu, 30-49.
Yfirburðir Hauka héldu áfram í þriðja leikhluta sem þeir sigruðu örugglega 10-26 þar sem Sigurður og Kristinn Marinósson voru með
skotsýningu.
Fjórða leikhlutann varð víst að spila þrátt fyrir að úrslitin væru í raun löngu ráðin. Bæði lið tæmdu bekkinn og leyfðu öllum að spreyta sig.
Mynd úr safni/ Helgi Björn Einarsson splæsti í tvo þrista í kvöld




