14:54
Haukakonur hafa yfir 46-40 í hálfleik gegn Grindavík í úrslitaleik Powerade bikarkeppninnar í kvennaflokki.
Í fyrstu virtust Íslandsmeistarar Hauka ætla að sigla örugglega fram úr en Grindvíkingar náðu að minnka muninn og því skilja aðeins sex stig af liðin í hálfleik. Helena Sverrisdóttir og Ifeoma Okonkwo hafa verið drjúgar hjá Haukum en Tamara Bowie hefur verið allt í öllu í Grindavíkurliðinu. Nánar síðar…