Öruggur sigur Vals

Valur fór með öruggan 98–68 sigur af hólmi gegn Fjölni í æfingaleik meistaraflokks kvenna í kvöld.  

Valskonur náðu undirtökunum strax í fyrri hálfleik og leiddu 49–39 í hálfleik eftir að hafa unnið fyrstu tvo leikhlutana 27–22 og 22–17. Í síðari hálfleik gerðu gestirnir endanlega út um leikinn með miklum krafti í þriðja leikhluta þar sem þær skoruðu 28 stig gegn aðeins 10 stigum Fjölnis.  

Dzana fór fyrir liði Vals með 20 stig og 11 fráköst, Alyssa skilaði 19 stigum og fyrirliðinn Stone bætti við 15 stigum og 5 stoðsendingum. Í liði Fjölnis var Arna atkvæðamest með 21 stig, Katla Lind bætti við 19 stigum og Hulda Björk skilaði 12 stigum og 6 fráköstum.

Fréttir
- Auglýsing -