Tindastóll hóf þátttöku í Norður-Evrópudeildinni (ENBL) með glæsibrag í dag þegar liðið lagði BK Liepāja örugglega að velli ytra, 92–69.
Skagfirðingar lögðu grunninn að sigrinum með frábærum öðrum leikhluta (29–19) og héldu öruggri forystu allt til loka.
Nýliðinn Ade Murkey fór mikinn og var stigahæstur með 25 stig, Dee Bost stjórnaði spilinu vel með 9 stig og 9 stoðsendingar, og Taiwo Badmus bætti við 15 stigum, 7 fráköstum og 7 stoðsendingum.
Næsta verkefni Stólanna í keppninni er útileikur gegn Jonava frá Litháen.




