spot_img
HomeFréttirHaukar lögðu Keflavík í spennuleik í unglingaflokki

Haukar lögðu Keflavík í spennuleik í unglingaflokki

16:20 

{mosimage}

 

Keflavík og Haukar mættust í bikarúrslitaleik í unglingaflokki kvenna í körfuknattleik í DHL-Höllinni í dag. Haukar höfðu nauman sigur 65-64 en Bryndís Guðmundsdóttir hefði getað trygg Keflavíkurkonum framlengingu þegar brotið var á henni í þriggja stiga skoti. Bryndís hitti úr fyrstu tveimur skotunum en brenndi af því þriðja og því fögnuðu Haukar sigri. Unglingaflokkar Keflavíkur og Hauka eru mjög sterkir og þar leika margir sterkir leikmenn úr meistaraflokkum félaganna svo um hörkuleik var að ræða í Vesturbænum í dag.

 

Sigrún Ámundadóttir, Haukum, var valin maður leiksins en hún gerði 21 stig í leiknum og tók 12 fráköst. Þær Helena Sverrisdóttir og María Ben Erlingsdóttir léku ekki með sínum liðum í dag þar sem þær eru báðar að taka stöðupróf fyrir bandaríska háskóla en þær hyggjast báðar stunda nám í Bandaríkjunum á næstu leiktíð.

 

Varnir liðanna voru sterkar í upphafi leiks og var lítið skorað. Liðin voru mikið á vítalínunni en það var Keflavík sem hafði forystuna að loknum fyrsta leikhluta 15-12.

 

Bæði lið beittu pressuvörn sem skilaði ekki mörgum boltum en þeim tókst að hægja nokkuð á sóknaraðgerðum andstæðingsins en pressurnar kostuðu einnig sitt. Margrét Kara Sturludóttir fékk sína þriðju villu snemma í 2. leikhluta sem og Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir. Guðrún Ámundadóttir gerði 5 stig í röð fyrir Hauka og kom þeim rauðu í 28-21 en Keflavík náði að minnka muninn í 29-27 fyrir hálfleik með lokakörfu frá Hörpu Guðjónsdóttur.

 

Keflavík var mun sterkari aðilinn í upphafi síðari hálfleiksins og náðu fínni forystu 42-35. Villuvandræðin héldu áfram að hrjá bæði lið, Unnur Tara Jónsdóttir fékk sína fjórðu villu í liði Hauka í þriðja leikhluta sem og þær Margrét Kara og Ingibjörg Elva í Keflavíkurliðinu. Bryndís Guðmundsdóttir kom Keflavík 48-40 með síðustu körfu þriðja leikhluta og góður gangur í Keflavíkurliðinu.

 

Snemma í fjórða leikhluta fékk Unnur Tara Jónsdóttir sína fimmtu villu í liði Hauka en það mótlæti virtist aðeins efla þær rauðu sem komust yfir með þriggja stiga körfu frá manni leiksins, Sigrúnu Ámundadóttur, og staðan orðin 55-54 Haukum í vil.

 

Endaspretturinn var æsispennandi og þegar sex sekúndur voru til leiksloka var staðan 65-62 Haukum í vil og Keflavík átti innkast á miðjunni. Bryndís Guðmundsdóttir fær boltann og brotið er á henni í þriggja stiga skoti. Bryndís hitti úr fyrstu tveimur vítunum en það þriðja vildi ekki ofan í og því fögnuðu Haukar sigri og sínum fjórða bikarmeistaratitli á þessari bikarhelgi yngri flokka.

 

Eins og fyrr greinir var Sigrún Ámundadóttir valin besti maður leiksins en Bryndís Guðmundsdóttir var langatkvæðamest í liði Keflavíkur. Bæði lið léku skemmtilegan bolta í dag og ljóst að þau eiga eftir að elda saman grátt silfur næstu árin.

 

Frétt og myndir af www.vf.is

 

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -