spot_img
HomeFréttirHaukar lítil fyrirstaða fyrir sterka Grindvíkinga (Umfjöllun)

Haukar lítil fyrirstaða fyrir sterka Grindvíkinga (Umfjöllun)

Grindavík, sem hefur farið vel af stað í deildinni í vetur, vann mjög þægilegan sigur á Haukum í Lengjubikarnum í kvöld,  70-92, þegar liðin mættust í Schenker-höllinni í Hafnarfirði. Þessi leikur fer seint í sögubækurnar fyrir frábæra skemmtun en leikurinn fór að mestu fram fyrir utan þriggja stiga línuna þar sem alls voru tekin 55 þriggja stiga skot í leiknum og ekki nema 22 villur dæmdar.
 
Grindvíkingar voru betri aðilinn á upphafsmínútu leiksins og settu niður fyrstu fjögur stigin. Haukar rönkuðu þá við sér, jöfnuðu og komust yfir og liðin skiptust á körfum eftir það. Grindvíkingar tóku leikinn í sínar hendur þegar þeir sáu að þeir þurftu að hafa örlítið fyrir hlutunum og keyrðu muninn yfir 10 stig og enduðu fyrsta leikhluta 12 stigum yfir 17-29.
 
Grindavík hélt uppi teknum hætti í upphafi annars leikhluta og keyrði muninn upp í 20 stig. Haukar náðu þó að bíta frá sér þegar þeir loksins hættu að hræðast leikmenn gestanna og minnkuðu muninn niður í 10 stig. Heimamenn hefðu getað farið með muninn undir 10 stig í hálfleik þegar þeir stálu boltunum og keyrðu í hraðaupphlaup en sendingin fram völlinn var of löng. Í stað þess að minnka muninn refsaði Jóhann Ólafsson Haukum grimmilega og smellti niður þriggja stiga körfu. Jóhann var sjóðandi í fyrri hálfleik en hann gerði 12 stig allt úr þriggja stiga skotum og var með 100% nýtingu í hálfleik.
Grindavík leiddi með 13 stigum í hálfleiknum 36-49
 
Haukar komu mun ákveðnari til leiks í seinni hálfleik og sýndu meiri baráttu en þeir höfðu gert framan af. Grindvík var þó ávallt í bílstjórasætinu og hélt Haukum í þægilegri fjarlægð frá sér. Haukar gerðu hetjulega baráttu um að minnka muninn í lok leikhlutans þegar þeir náðu honum niður í 13 stig aftur en tvö hrikaleg mistök varð til þess að Grindavík fékk fimm auðveld stig og keyrðu muninn upp í 18 og leiddu þannig eftir leikhlutann, 59-77
 
Þessi mistök Haukamanna í lok þess þriðja virtust gjörsamlega slökkva í þeim neistann og Grindvíkingar gengu á lagið. Munurinn jókst enn frekar á liðunum og var kominn vel yfir 20 stigin og löngu ljóst að leikurinn var búinn. Þjálfarar beggja liða hleyptu minni spámönnum inn á völlinn og að endingu vann Grindavík 70-92.
 
Stigahæstur hjá Grindavík var Sammi Zeglinski með 19 stig og Aaron Broussard gerði 18 stig og tók 10 fráköst.
 
Hjá Haukum var Aaryon Williams með 17 stig og 17 fráköst og honum næstur var Kristinn Marinósson með 16 stig en hann átti flotta innkomu af bekknum.

Myndasafn úr leiknum

 
Fréttir
- Auglýsing -