Haukar fengu Njarðvík í heimsókn í Schenkerhöllina í 16. umferð í Dominosdeild kvenna í kvöld. Haukar eru búnar að vera á góðu skriði undanfarið og héldu því áfram í kvöld og eru þær því komnar með þrjá sigra í röð og búnar að fullkomna Reykjanes þrennuna með yfirburðar sigri á Njarðvík, 86-57, eftir að hafa sigrað Keflavík og Grindavík í seinustu tveimur leikjum.
Byrjunarlið Hauka: Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, María Lind Sigurðardóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Siarre Evans.
Byrjunarlið Njarðvíkur: Eyrún Líf Sigurðardóttir, Lele Hardy, Guðlaug Björt Júlíusdóttir, Svava Ósk Stefánsdóttir og Erna Hákonardóttir.
Haukar byrjuðu leikinn af miklum krafti og Njarðvík vissi ekkert hvaðan á sig stóð veðrið. María Lind Sigurðardóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir komust báðar tvíveigis í sniðskot úr hraðaupphlaupum Hauka á fyrstu fjórum mínútunum og skoruðu úr þeim sex stig. Eftir fimm mínútna leik var staðan orðið 17-5 fyrir Hauka og ekkert gekk hjá Njarðvík. Samt voru þær að fá fullt af opnum skotum og þar af mörg undir körfunni en boltinn vildi ekki detta í gegnum netið. Haukar slökuðu aðeins á klónni á þessum tímapunkti og fóru að eiga hverja mislukkuðu sendinguna á eftir annari sem átti eftir að verða viðvarandi vandamál út leikinn. Lele Hardy skoraði ekki stig fyrr en á tíundu mínútu og það úr vítaskoti og setti aðeins annað þeirra. Staðan að lokum leikhlutans var 21-6 og var skelfilegt að líta á skotnýtinguna hjá Njarðvík, 1 af 16 og 6.2% tveggjastigaskotnýting og 1 af 7 og 14.3% þriggjastigaskotnýting á meðan að allt datt hjá Haukum eða 66.7% og 50% skotnýting. Siarre Evans var sjóðandi heit með 11 stig og 7 fráköst.
Njarðvík náði að koma sér í gang í öðrum leikhlutanum. Skotin fóru að detta og þær gerðu Haukum erfiðara fyrir í sókninni. Lele Hardy fór fyrir vörninni og tók 6 fráköst og var með 3 stolna bolta, Eyrún Líf Sigurðardóttir fór fyrir sókninni og skoraði 10 stig. Haukar unnu hins vegar leikhlutann með tveimur stigum og leiddu því 42-25 í hálfleik. Siarre Evans var með 14 stig og 12 fráköst í hálfleik og Gunnhildur Gunnarsdóttir var með 9 stig. Hjá Njarðvík var Eyrún Líf lang stigahæst með 13 stig á meðan að Hardy var með glæsilegar varnar tölur eða 10 fráköst og 5 stolna bolta.
Í þriðja leikhlutanum hélt Njarðvík áfram að sækja í sig veðrið og fóru að spila pressuvörn. Það skilaði sér í 19-9 áhlaupi hjá þeim þar sem Haukar fengu dæmdar á sig 8 sek. og misstu boltann samtals 10 sinnum og var munurinn kominn niður í sjö stig í stöðunni 51-44 með tvær og hálfa mínútu eftir af leikhlutanum. Lele Hardy átti svaka leik þar, var með 12 stig og 6 stolna bolta. Nær komst þær þó ekki því Haukar enduðu leikhlutinn á 10-0 kafla og því með sautján stiga mun í lok þriðja leikhlutans, 61-44.
Njarðvík átti svo ekki möguleika í fjórða leikhlutanum. Það slokknaði algjörlega á Hardy sem átti ekki skot í leikhlutanum og Eyrún Líf tók bara eitt sem var langur þristur sem geigaði. Svava Ósk Stefánsdóttir var svo í ruglinu og lét villa sig útaf með því að fá á sig dæmdar 3-4 villur í leikhlutanum. Sara Dögg Margeirsdóttir og Ína María Einarsdóttir voru þær einu sem reyndu að skjóta að körfunni af einhverju marki en gekk illa að hitta. Haukar unnu leikhlutann með 12 stigum þar sem Auður Íris Ólafsdóttir, María Lind Sigurðardóttir og Ína Salome Sturludóttir voru mest áberandi, Auður með 4 stig og 2 sóknarfráköst, María með 6 stig og Ína með 4 stig.
Stigahæstar hjá Haukum voru: Siarre Evans 24 stig/17 fráköst/4 stolnir boltar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 14 stig/4 fráköst/5 stoðsendingar, María Lind Sigurðardóttir 10 stig/10 fráköst.
Stigahæstar hjá Njarðvík voru: Lele Hardy 16 stig/14 fráköst/6 stoðsendingar/12 stolnir boltar, Eyrún Líf Sigurðardóttir 13 stig, Svava Ósk Stefánsdóttir 7 stig.
Leikmaður leiksins: Siarre Evans
Mynd/ María Lind Sigurðardóttir og Salbjörg Sævarsdóttir eigast við í úrslitum í fyrra.
Umfjöllun/ K. Bergmann




