spot_img
HomeFréttirHaukar-ÍS í beinni á karfan.is

Haukar-ÍS í beinni á karfan.is

12:00 

 

{mosimage}

 

 

 

Það verður sannkallaður stórleikur að Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 16:00 í dag. Þá mætast Haukar og ÍS í 5. leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna. Þetta er hreinn úrslitaleikur um réttinn til þess að leika í úrslitum Iceland Express deildarinnar. Fyrir þá sem ekki hafa tök á því að komast á leikinn verður hægt að fylgjast með gangi mála hér á karfan.is undir liðnum ,,leikir í beinni” þar sem uppfært verður frá leiknum eins og völ er á. 

Heimavöllurinn hefur skipt sköpum í einvíginu til þessa en Haukar eru með heimavallarréttinn. Fyrsti leikurinn fór 76-61 fyrir Hauka. ÍS sigraði leik 2 84-74, Haukar þann þriðja 78-61 og í síðasta leik sigraði svo ÍS með 10 stiga mun 87-77. 

Það verður því mjög áhugavert að fylgjast með leiknum í dag. Haukar voru fyrirfram taldar sigurstranglegri aðilinn enda höfðu þær sigrað alla leiki liðanna í vetur og enduðu á toppi deildarinnar á meðan ÍS var í 4. sæti. Í liði ÍS eru þó margir sterkir leikmenn og þær hafa sýnt að þær eru sýnd veiði en ekki gefin.

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -