KR tóku á móti Haukum í gær í lokaumferð B-riðils í fyrirtækjabikar kvenna. Haukar komust í 0-10 í upphafi leiks og var sigur þeirra aldrei í hættu í stigalágum leik er Haukar unnu 44-61. Bæði lið spiluðu öllum leikmönnum sínum mikið og fékk hver leikmaður a.m.k. tæpar 8 mínútur af leiktíma. Athygli vakti að hin 16 ára Þóra Kristín Jónsdóttir var í byrjunarliðinu hjá Haukum og átti hún prýðisgóðan leik.
Haukar því komnar í úrslitaleikinn sem verður n.k. Sunnudag kl.14 þar sem þær mæta Val eða Grindavík.
KR réð lítið við Hauka í fyrri hálfleik og tók það þær rúmar sex mínútur til að skora sín fyrstu stig. Haukar voru því með góða forystu í hálfleik þrátt fyrir lágt stigaskor, eða 19-31. Stigaskorunin hjá KR dreifðist mjög illa í fyrri hálfleik, en liðið fékk aðeins framlag frá fjórum leikmönnum og bættist einungis sú fjórða við þegar Sara Magnúsdóttir skoraði með rétt rúma mínútu til hálfleiks. Á móti voru Haukar með framlag frá átta leikmönnum hjá sér.
Sigrún Sjöfn Ámundardóttir var atkvæðamest í liði KR í fyrri hálfleik með 9 stig, 7 fráköst og 2 stoðsendingar. Hjá Haukum var það Lovísa Björt Henninngsdóttir sem skoraði 8 stig, 3 fráköst og var með 2 stoðsendingar.
KR byrjuðu seinni hálfleikinn á fullri pressu í von um að laga stöðuna en það gekk ekki eftir þar sem að Haukar skoruðu 10 stig á fyrstu þremur mínútunum. Haukar áttu eina afar glæsilega sókn þegar þær komu upp í hraðaupphlaupi þar sem þær áttu fjórar sendingar sem fóru á milli fjögurra leikmanna áður en Dagbjört Samúlsdóttir rak smiðhöggið á þessa skemmtilegu sókn.
Með tæpar fimm mínútur til leiksloka átti einungis Þóra Kristín eftir að skora fyrir Hauka og þar sem að sigurinn var sama sem vís fyrir Hauka var skipunin greinilega sú að það átti að gera allt sem hægt var til að koma henni á blað. Hún var því í algjöru aðalhlutverki í hverri einustu sókn hjá Haukum og fór kliður um áhorfendur í hvert skipti sem hún komst í færi en því miður vildi boltinn ekki detta fyrir hana og rúllaði hann ansi oft af hringnum. Bekkurinn hjá Haukum tryllist svo þegar brotið var á Þóru Kristínu þegar aðeins 24 sek. voru eftir af leiknum og hún komst á vítalínuna. En eins og í góðri bíómynd þurfti Þóra Kristín að bíða fram á síðustu stundu til að fá stigið í hús þar sem að hún brenndi af fyrra skotinu áður en það seinna fór svo niður.
/mynd úr safni – Þóra Kristín í bikarúrslitum í yngri flokkum




