spot_img
HomeFréttirHaukar hrukku í gang í fjórða leikhluta

Haukar hrukku í gang í fjórða leikhluta

Haukar endurheimtu í kvöld þriðja sætið í Iceland Express deild kvenna með öruggum sigri á Val. Í 30 mínútur var leikurinn jafn og spennandi en Haukar tóku leikinn í sínar hendur í fjórða leikhluta og rúlluðu yfir gesti sína af Hlíðarenda, lokatölur 84-66 Haukum í vil.
Nú eru tíu umferðir eftir af deildarkeppni kvenna og línur teknar að skýrast nokkuð en Keflavík er með 30 stig á toppi deildarinnar, Njarðvík með 26 stig í 2. sæti, Haukar með 22 stig í 3. sæti og KR í 4. sæti með 22 stig en Haukar hafa betur innbyrðis. Næsta lið í 5. sæti er Snæfell með 16 stig, 6 stigum á eftir KR en aðeins fjögur efstu lið deildarinnar munu skipa úrslitakeppnina.
 
Hafnfirðingar leiddu 20-19 að loknum fyrsta leikhluta og munurinn átti ekki eftir að verða mikið meiri á liðunum fyrstu þrjá leikhlutana í kvöld því þau skiptust á forystunni í miklum slag. Jence Rhoads gerði sex Haukastig í röð í upphafi annars leikhluta og Valskonur tóku leikhlé í stöðunni 26-22 Hauka í vil. Orð Ágústar Björgvinssonar þjálfara Valskvenna hafa ekki hitt í mark því skömmu síðar komust Haukar í 40-30 og tók Ágúst þá annað leikhlé. Í þetta sinnið virtist hann ekki hafa talað fyrir daufum eyrum því Valur lokaði fyrri hálfleik með 1-9 áhlaupi þar sem Melissa Leichlitner kom mikið við sögu.
 
Þegar 5,6 sekúndur voru til hálfleiks var dæmd óíþróttamannsleg villa á Guðrúnu Ámundadóttur er hún braut á Leichlitner í hraðaupphlaupi. Melissa setti niður bæði vítin, Valur tók innkast á miðju og boltinn í hendur Melissu sem setti niður glæsilegt en gríðarlega erfitt þriggja stiga skot og minnkaði muninn í 41-39 og þannig voru hálfleikstölur.
 
Rétt eins og í fyrri hálfleik mættu bæði lið inn á parketið í þeim síðari með svæðisvörn og fremur lítið var skorað í þriðja leikhluta. Berglind Karen Ingvarsdóttir mundaði byssuna og setti þrist fyrir Val og Guðbjörg Sverrisdóttir jafnaði skömmu síðar 49-49 fyrir Valskonur með annarri þriggja stiga körfu. Gamanið var þó stutt hjá Guðbjörgu í þriðja leikhluta þar sem hún hélt af velli meidd á fingri.
 
Melissa Leichlitner hélt áfram að vera broddurinn í sóknarleik Valskvenna sem unnu þriðja leikhluta 15-18 og leiddu því 56-57 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
 
Haukum hafði lítið gengið fyrir utan þriggja stiga línuna fyrstu þrjá leikhlutana í kvöld en Íris Sverrisdóttir fann taktinn og smellti snemma í fjórða niður tveimur stórum þristum og kom Haukum í 69-59. Stóru skotin voru farin að rata rétta leið hjá Haukum sem tvíelfdust fyrir vikið, Valskonur fóru einnig illa með boltann og Haukar voru fyrir vikið að uppskera auðveldar körfur. Fjórði leikhluti var í reynd eitthvað sem Valskonur vilja örugglega gleyma sem fyrst því allt annað lið var inni á vellinum á þessum lokaspretti heldur en fyrstu þrjá hlutana og bjuggust flestir við spennuslag fram á síðustu sekúndu.
 
Fjórði leikhluti fór 28-9 fyrir Hauka sem sundurspiluðu gesti sína og drógu fremur afgerandi línu í baráttunni um sætin í úrslitakeppninni. Þó vissulega séu enn 20 stig í pottinum og alls ekki hægt að segja til um hvaða lið skipi endanlega úrslitakeppnina þá fer munurinn á fjórum efstu liðunum og fjórum neðstu að verða ansi mikill.
 
Margrét Rósa Hálfdánardóttir, Íris Sverrisdóttir og Jence Ann Rhoads áttu allar glimrandi leik með Haukum í kvöld en hjá Val var Melissa Leichlitner að draga vagninn þó vissulega hefðu María Ben, Kristrún og Guðbjörg átt sína spretti.
 
 
Heildarskor
 
Haukar: Íris Sverrisdóttir 24/6 fráköst, Jence Ann Rhoads 21/9 fráköst/11 stoðsendingar, Margrét Rósa Hálfdánardóttir 19/4 fráköst, Hope Elam 12/11 fráköst/4 varin skot, Auður Íris Ólafsdóttir 3, María Lind Sigurðardóttir 2, Guðrún Ósk Ámundardóttir 2/10 fráköst, Gunnhildur Gunnarsdóttir 1, Ína Salóme Sturludóttir 0, Kristín Fjóla Reynisdóttir 0, Sólrún Inga Gísladóttir 0, Sara Pálmadóttir 0.
 
Valur: Melissa Leichlitner 22/6 fráköst/6 stoðsendingar, María Ben Erlingsdóttir 9/3 varin skot, Kristrún Sigurjónsdóttir 9, Guðbjörg Sverrisdóttir 9, Lacey Katrice Simpson 8/9 fráköst/3 varin skot, Berglind Karen Ingvarsdóttir 5, Unnur Lára Ásgeirsdóttir 2, Hallveig Jónsdóttir 2, Þórunn Bjarnadóttir 0, Ragnheiður Benónísdóttir 0, María Björnsdóttir 0.
 
Dómarar: Eggert Þór Aðalsteinsson og Björgvin Rúnarsson, dæmdu vel í 30 mínútur og síðustu 10 mínúturnar voru nú ekki mikið vandaverk fyrir þessa herramenn enda einstefna í gangi.
 
 
   
Fréttir
- Auglýsing -