Haukar unnu sterkan sigur á Þór Þorlákshöfn á Ásvöllum í kvöld, 84-75. Atkvæðamestur hjá heimamönnum var Finnur Atli Magnússon með 20 stig, 7 fráköst, 5 stoðsendingar & 2 varin skot. Vance Hall var með 18 stig, 7 fráköst & 4 stoðsendingar hjá Þórsurum.
Búist var við hörkuleik á Ásvöllum í kvöld enda mikill hiti búinn að vera í liðunum í fyrstu tveimur leikjum seríunnar. 1. leikhluti var heilt á litið nokkuð jafn. Haukar fóru betur af stað en góð rispa frá gestunum kom þeim yfir um miðjan leikhlutann. Þegar 2 mínútur voru eftir af leikhlutanum fékk erlendi leikmaður Haukanna, Brandon Mobley, brottrekstrarvillu fyrir að gefa Davíði Arnari Ágústssyni olnbogaskot að virtist í andlitið. Þessi dómur virtist trufla Þórsara meira en Haukana, gestirnir litu út fyrir að vera slegnir útaf laginu.
Haukar voru sterkir í 2. leikhluta en 3. leikhlutinn síðan algjörlega eign Þórsara. Staðan eftir fyrstu þrjá leikhlutana var 59-61 gestunum í vil og stemmingin frekar að vinna með þeim en heimamönnum. Það hefur þó eitthvað verið sagt á bekk Haukanna fyrir loka átökin. Þeir mættu grimmir inn í lokamínúturnar og pökkuðu gestunum sem náðu sér í nokkrar asnalegar villur og misstu tökin á sínum leik. Lítið gekk að koma boltanum niður hjá Þórsurum, Vance Hall orðinn þreyttur og skotin of stutt. Haukar unnu leikhlutann örugglega, 25-14.
Lokatölur voru 84-75 og Haukar því komnir með 2-1 forystu í seríunni. Nokkur bið er eftir næsta leik en menn fá nú nokkurra daga frí yfir páskana. Leikur 4 fer fram í Þorlákshöfn næsta þriðjudag, 29. mars, og þá er að duga eða drepast fyrir Þór Þorlákshöfn.
Haukar-Þór Þ. 84-75 (20-20, 22-16, 17-25, 25-14)
Haukar: Finnur Atli Magnússon 20/7 fráköst/5 stoðsendingar, Kári Jónsson 16, Hjálmar Stefánsson 13, Haukur Óskarsson 11, Emil Barja 8/10 fráköst/5 stoðsendingar, Brandon Mobley 7, Kristinn Jónasson 5/4 fráköst, Kristinn Marinósson 4/4 fráköst, Jón Ólafur Magnússon 0, Arnór Bjarki Ívarsson 0, Ívar Barja 0, Guðni Heiðar Valentínusson 0.
Þór Þ.: Vance Michael Hall 18/7 fráköst, Ragnar Ágúst Nathanaelsson 12/13 fráköst, Ragnar Örn Bragason 10/5 fráköst, Grétar Ingi Erlendsson 10/5 fráköst, Davíð Arnar Ágústsson 9, Emil Karel Einarsson 8/4 fráköst, Þorsteinn Már Ragnarsson 4, Baldur Þór Ragnarsson 2, Halldór Garðar Hermannsson 2, Magnús Breki Þórðarson 0, Sveinn Hafsteinn Gunnarsson 0, Jón Jökull Þráinsson 0.




