Haukar og Njarðvík mættust í Dominosdeild kvenna í gærkvöldi en þessi lið háðu einmitt úrslitabaráttuna um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta tímabili. Þá voru það Njarðvíkurstúlkur sem fóru með sigur af hólmi en í gærkvöldi voru það Haukastúlkur sem tóku sigur í Ljónagryfjunni með 57:60 sigri.
Jafnt var á með liðinum fyrstu 5 mínútur leiksins en svo voru það gestirnir úr Hafnarfirði sem tóku frumkvæðið í leiknum og leiddu nánast restina af leiknum. Njarðvíkurstúlkur komust aldrei í forystu eftir þetta í leiknum og náðu Haukar mest 20 stiga forskoti. Njarðvíkurstúlkur voru hinsvegar ekki langt frá því að ná að stela sigrinum en Haukastúlkur héldu í sitt og sigruðu verðskuldað.
Erlendirleikmenn liðanna fóru mikin fyrir sín lið. Lele Hardy setti 24 stig og hirti 17 fráköst þrátt fyrir það að puttabrotna í leiknum. Og hjá Haukum var Siarre Evans með 27 stig og 24 fráköst. Engar smá tölur hér á ferðinni hjá þessum stúlkum.
Mynd: vf.is




