HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaHaukar áfram taplausir á toppnum – Fyrsti sigur Skallagríms í Bæjarins bestu...

Haukar áfram taplausir á toppnum – Fyrsti sigur Skallagríms í Bæjarins bestu deild karla

Sex leikir fóru fram í sjöundu umferð Bæjarins bestu deildar karla í körfuknattleik í kvöld.

Topplið Hauka heldur sigurgöngu sinni áfram og er áfram eitt og taplaust á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, fjórtán stig eftir sjö umferðir, eftir öruggan fimmtán stiga útisigur gegn KFG í Garðabæ, 73–88.

ÍA og Þór Þorlákshöfn fylgja Haukum eins og skugginn í öðru og þriðja sæti með tólf stig hvort lið. Skagamenn höfðu betur gegn Fjölni á heimavelli, 104–93, á meðan Þórsarar sóttu sterkan útisigur í Stykkishólm gegn Snæfelli, 93–102.

Þá náði Skallagrímur í sinn fyrsta sigur á tímabilinu með sannfærandi hætti í Borgarnesi gegn Hamri, 105–83, og jafnaði þar með Snæfell og Fjölni að stigum í neðstu þremur sætum deildarinnar með tvö stig. Einnig unnu Selfoss og KV mikilvæga heimasigra í kvöld og eru bæði lið nú jöfn Breiðabliki og KFG í fjórða til sjöunda sæti með átta stig.

Úrslit kvöldsins í Bæjarins bestu deild karla:

  • ÍA 104 – 93 Fjölnir
  • KV 96 – 90 Þór Ak.
  • Selfoss 99 – 90 Breiðablik
  • Skallagrímur 105 – 83 Hamar
  • Snæfell 93 – 102 Þór Þ.
  • KFG 73 – 88 Haukar
Fréttir
- Auglýsing -