Dagana 24. og 25. mars næstkomandi mun hið heimsfræga sýningar- og körfuboltalið Harlem Globetrotters heimsækja Ísland á nýjan leik. Harlem Globetrotters þarf ekki að kynna fyrir nokkrum manni en þeir hafa selt tugþúsunda miða hér á landi frá því þeir komu hingað fyrst.
Ísland hefur alltaf átt sérstakan stað í hjörtum Harlem og myndu þeir vilja koma hingað til lands á hverju ári svo gaman hafa þeir af því að sýna hér og heimsækja Ísland.
Heimsókn þeirra í lok mars verður endahnútur þeirra á Evrópuferðalagi þeirra 2015.
Miðasala er hafin á midi.is og áhugasömum ráðlagt að tryggja sér miða strax því síðast seldist upp og urðu Harlem Globetrotters að vísa fleiri hundruð manns frá á sýningardeginum.