Keflavík leiðir Hauka í hálfleik í fyrsta leik undanúrslita kvenna með 43 stigum gegn 26. Mestu munar um framlag hinnar mögnuðu Carmen Tyson Thomas, en hún er búin að setja 18 stig (7/11) og taka 8 fráköst á þeim rétt rúmu 16 mínútum sem hún hefur spilað í leiknum. Fyrir gestina er Lele Hardy atkvæðamest með 10 stig (4/16).




