Kvennaráð Keflavíkur stóð í kvöld fyrir fyrirlestri um markmiðsetningu í íþróttum. Hafrún Kristjánsdóttir sálfræðingur og fyrrverandi landsliðskona í handbolta var fengin til að koma og ræða við stelpur í 9. flokki og eldri.
Farið var yfir bæði langtíma og skammtíma markmiðsetningu, skuldbindingar við þau markmið sem þær hafa sett sér og einnig fór hún yfir uppbyggingu á sjálfstrausti. Sem fyrr segir var það kvennaráð Keflavíkur sem stóð fyrir þessum fyrirlestri og vissulega gott framtak. Kvennaráðið sem tók við nú fyrir þennan vetur hefur sett sér þau markmið að efla starfið í kringum kvennaboltann í Keflavík. Þessi fyrirlestur var einmitt eitt af þeim verkefnum.
Ekki var annað að sjá en að stúlkurnar hafi verið ánægðar með Hafrúnu.