HomeFréttirGylfi Þorkelsson segir Áfram KR

Gylfi Þorkelsson segir Áfram KR

Austur á Selfossi situr Gylfi Þorkelsson og veltir hlutunum fyrir sér. Hann hefur ýmsa fjöruna sopið í íslenskum körfubolta og því var við hæfi að setja sig í samband við hann og fá hann til að rýna í kristalskúluna og spá fyrir um 8 liða úrslit Iceland Express deildar karla og undanúrslit í Iceland Express deild kvenna.

 
Byrjum á körlunum.

 

Snæfell-Haukar
Þetta verður einstefna. Snæfell hefur siglt seglum þöndum frá því í fyrra. Liðið er vel samanslípað og leikmenn með nægt sjálfstraust. Þeir hafa farið alla leið og vita hvað þarf til að gera það aftur. Þó Haukar geti auðvitað bitið eitthvað frá sér er það ekki nóg til að setja Snæfellsliðið úr jafnvægi.
 
KR-Njarðvík
Þetta einvígi er ekki gott að segja til um. Njarðvíkurliðið hitti loks á útlendingaframlínu sem gerir gagn. Í þeirra herbúðum eru margir góðir leikmenn sem hafa leikið undir getu í mestallan vetur. Með sjálfstraustið í lagi eru þeir einfaldlega baneitraðir, og það lítur út fyrir að liðið gæti verið að komast í þann gír einmitt núna. KR er betra lið, finnst mér, en nú er eins og pressan sé öll á þeim. Þá er bara spurningin hvort þeir standi undir því? Ef Pavel sýnir bestu hliðar sínar og Fannar getur verið með á fullu, þá vinnur KR. Þó ég haldið að öðru jöfnu aldrei með KR, tek ég ofan fyrir þeim að hafa haldið sig við sinn hóp og segi því: „Áfram KR“!
 
Keflavík-ÍR
Ég minni á síðustu rimmu þessara liða, þegar ÍR var komið í 2-0 en tapaði 2-3. ÍR-ingum hlýtur enn að svíða sú niðurlæging. Ef ekki, þá tapa þeir sannfærandi. Annars gætu þeir tekið þetta. Það er kominn tími á ÍR að gera sig gildandi. Þeir hafa verið á uppleið undanfarið. Það er náttúrulega ekki við menn að eiga, en ég vona alla vega að ÍR vinni.
 
Grindavík-Stjarnan
Grindavíkurliðið er of brothætt að mínu mati, með Lalla í einhverju leiðindatjóni og bara „litla bróður“ með sjáanlegan eld í augum. Það er ekki nóg. En ef kviknar á Páli og Pattinella fær að valsa um teigana að vild eiga þeir þó von. Stjarnan er með stabíla gæðamenn eins og Justin og Jovan, menn sem aldrei klikka á raunastund. Þá hlýtur Marvin, einn öflugasta sóknarmanninn mörg undanfarin ár, vera farið að hungra eftir því að minnsta kosti að fá að þefa af einhverjum dollum. Ég held að hann verði að sýna það núna að hann sé gerður úr alvöru gæðaefni, og þá vinnur Stjarnan, enda harðir naglar í kringum þessa þrjá. 
 
Þá er komið að stelpunum.
 
Keflavík-KR
Það verður erfitt fyrir KR-inga að mæta Körulausar, nýbakaðar úr bikarnum. Eina vonin er að þeim takist að berja í sig aukakraft, eins og stundum gerist við svona aðstæður, og að Keflavíkurstelpur falli í þá gryfju að halda að það þurfi ekki að mæta til leiks til að vinna. En það yrði þó aldrei nema einn leikur. Keflvík vinnur einvígið.
 
Hamar-Njarðvík
Njarðvíkurliðið er sýnd veiði en ekki gefin og gæti gert Hamri skráveifu. Ég held þó að Gústi nenni ekki að falla um deild með karlaliðinu og detta út í undanúrslitum, bæði í bikar og deild, með kvennaliðinu, allt á sama keppnistímabili. Hamar vinnur einvígið, og svo titilinn í framhaldinu.
 
Fréttir
- Auglýsing -