spot_img
HomeFréttirGuðni Th. sendir körfuboltabúðum Vestra góðar kveðjur "Við missum ekki móðinn"

Guðni Th. sendir körfuboltabúðum Vestra góðar kveðjur “Við missum ekki móðinn”

Nú fyrir helgina var tekin sú ákvörðun að aflýsa körfuknattleiksbúðum Vestra sem fara áttu fram 6.-11. ágúst næstkomandi á Ísafirði. Ár hvert koma þar saman fjölmargir þjálfarar og leikmenn af öllu landinu til æfinga. Var það í ljósi nýrra tilskipana yfirvalda vegna Covid-19 sem búðunum var frestað.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, virðist hafa verið á leiðinni vestur og því fylgst með framvindu mála varðandi búðirnar ef marka má bréfið sem hann sendi þeim fyrir helgina.

Bréfið má í heild lesa hér fyrir neðan, en í því stappar hann stálinu í mótshaldara og hrósar þeim fyrir þá ábyrgu ákvörðun að hafa aflýst í ljósi aðstæðna. Segir hann þá að lokum að von sé á honum á næsta ári.

Fréttir
- Auglýsing -