HomeFréttirGuðni í undanúrslit og Axel úr leik

Guðni í undanúrslit og Axel úr leik

Guðni Heiðar Valentínusson er kominn í undanúrslit dönsku úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik með Bakken Bears en Axel Kárason er úr leik með Værløse. Axel og félagar töpuðu í gær sínum öðrum leik gegn Svendborg Rabbits en Guðni og Bakken skelltu Aabyhøj í tveimur leikjum.
Úrslit gærkvöldsins:
 
Værløse 58-91 Svendborg Rabbits
Axel var næststigahæstur í liði Værløse með 12 stig og 8 fráköst á þeim 30 mínútum sem hann spilaði í leiknum.
 
Aabyhøj 67-83 Bakken Bears
Guðni var í leikmannahópi Bakken í gær en kom ekki inná í leiknum. Chris Nielsen var stigahæstur hjá Bakken með 20 stig.
 
Værløse er því úr leik þetta tímabilið en Bakken Bears mætir Team Fog Næstved í undanúrslitum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast svo Svendborg Rabbits og Horsholm eða Horsens IC en staðan í því einvígi er 1-1.
 
Fréttir
- Auglýsing -