HomeFréttirGuðmóðir meistara

Guðmóðir meistara

Nafnið Erna Agnarsdóttir þekkja ef til vill ekki margir utan lóða Njarðvíkurbænda – en það breytist fljótt þegar nefnt er að hún sé móðir Örlygsbræðrana. Þá ættu flestir körfuknattleiksunnendur að kveikja strax á perunni.

Erna er 91 árs gömul og móðir þeirra Sturlu, Teits, Gunna og Stefáns Örlygssona, sem allir unnu til fjölda Íslands- og bikarmeistaratitla á ferli sínum í meistaraflokki. Þótt Erna hafi sjálf aldrei skorað eitt einasta stig í körfubolta er ekki ólíklegt að þessi geðþekka en jafnframt harðákveðna kona úr Njarðvík sitji á Íslandsmeti sem seint verður slegið.

Börn, barnabörn og barnabarnabörn Ernu hafa öll unnið að minnsta kosti einn stóran titil á körfuboltaferli sínum. Sá nýjasti bættist við í vikunni þegar Hulda María Agnarsdóttir varð Íslandsmeistari með Njarðvík. Þegar allt er talið saman hafa afkomendur Ernu unnið alls 39 Íslands- og bikarmeistaratitla. Nokkrir þeirra unnust þegar Örlygsbræðurnir léku saman og eitt ár með Örlyg Aron Sturluson, og ef þeir sjö titlar eru teknir út fyrir sviga standa eftir 32 Íslands- og bikarmeistaratitill á milli afkomenda hennar. Óstaðfest Íslandsmet – þar til annað kemur í ljós.

Af börnum og barnabörnum Ernu var það Örlygur Aron Sturluson heitinn sem fyrstur varð Íslandsmeistari árið 1998. Systir hans, Margrét Kara Sturludóttir, varð síðar tvívegis Íslandsmeistari og einu sinni bikarmeistari. Sigurður Dagur Sturluson landaði svo tveimur bikarmeistaratitlum með Val og Stjörnunni og svo nýjasta nýtt, Hulda María Agnarsdóttir sem er svo barnabarnabarn Ernu, hefur svo á síðustu tveimur tímabilum unnið bæði Íslands- og bikarmeistaratitil.

Þá má einnig bæta við að Flóki Hólm Viðarsson, 13 ára barnabarnabarn Ernu og son Margrétar Köru er þegar farinn að láta að sér kveða og varð Íslandsmeistari nýverið með liði Stjörnunnar.

Flóki Hólm Viðarsson

Að þessu öllu sögðu og fjöldan af titlum innan fjölskyldunnar þá setjum við fyrirvara um að einhverjir titlar gætu hafa gleymst en tölfærðin ætti að vera nokkuð skotheld þar sem að við nutum aðstoðar Körfustatt. Genin hafa svo skilað óteljandi yngriflokka titlum í Ljónagryfjuna og við látum það haldast óteljandi.

Og enn til viðbótar og gamans, þá á Erna að baki Edduverðlaunaframmistöðu í annálsgerð Njarðvíkinga þar sem hún lék Guðmóðirina í stóru sameiningarvitleysunni fyrir nokkrum árum síðan.

ÍslandsmeistariBikarmeistari
Sturla1981,1982,19841988,1992
Teitur1984,1985,1986,
1987,1991,1994,
1995,1998,2001,
2002
1987,1988,1989,
1990,1992, 1999,2002
Gunnar19911988,1989,1990,
1992
Stefán19911989,1990,1992
Örlygur1998
Margrét Kara2008,20102009
Sigurður Dagur2013, 2015
Hulda María20262025

Fréttir
- Auglýsing -