Keflvíkingar fengu nágranna sína og Íslandsmeistara Grindavíkur í heimsókn í fyrstu umferð Dominosdeildar karla í kvöld. Það voru gestirnir sem fóru með sigurinn í farteskinu eftir að nokkuð jafnræði hafði verið með liðunum í fyrri hálleik. 80:95 öruggur sigur þeirra gulklæddu sem litu óneitanlega vel út í í kvöld.
Keflvíkingar mega vera nokkuð stoltir með fyrstu 20 mínútur leiksins í það minnsta sóknarlega en vörnin bauð Grindvíkingum nánast rauða dregilinn upp að körfunni. Grindvíkingar virtust ekki hafa mikið fyrir hlutunum sóknarlega og svöruðu stigum heimamanna nánast algerlega óáreittir.
En þetta leit alls ekkert illa út hjá Keflvíkingum. Almar Guðbrandsson var að sýna skínandi leik í fyrri hálfleik og setti hann niður 12 stig. En allt loft virtist hafa lekið úr þeirri blöðru því hann náði ekki að fylgja þeirri frammistöðu eftir í seinni hálfleik. Annars voru það lykilleikmenn Keflavíkur sem einfaldlega voru langt frá sínu besta. Magnús Þór komst aldrei í takt við leikinn og má segja að leikur Keflvíkinga hefur undanfarin ár staðið og fallið með frammistöðu Magnúsar.
En hjá Keflvíkingum var nýr leikmaður sem var augljóslega ekki komin inní leik liðsins. Hann lofar hinsvegar góðu. Eins og einhver sagði, ágætis togari inni í teig sem á eftir að reynast Keflvíkingum vel ef miðað er við frammistöðu hans þetta kvöldið.
Grindvíkingar eru Íslandsmeistarar og spiluðu líkt og slíkir í kvöld. Yfirvegun var yfir leik liðsins og handbragð Sverris Þórs Sverrissonar sást greinilega á leik liðsins. Sverrir hefur alltaf verið nokkuð lunkinn að laða til sín góða erlenda leikmenn og þetta skiptið er engin undantekning. Sammy Zeglinski er bakvörður af guðsnáð. Stjórnaði leik Grindvíkur af festu og skoraði stig þegar þess þurfti. Frábær leikmaður! Aaron Broussard er svo ekkert slor, heldur fór lítið fyrir kappanum en svo þegar maður leit á töfluna var hann komin með 24 stig. Silent but deadly segja þeir um svona menn vestur um haf.
En sigur gestanna þetta skiptið verðskuldaður að öllu. Töluvert betri aðilinn og komnir með fyrsta sigurinn á þessu tímabili.
Mynd:
Texti/mynd: [email protected]




