Lokamót 8. flokks karla fór fram í Röstinni í Grindavík um síðustu helgi þar sem heimamenn urðu Íslandsmeistarar eftir 66-55 sigur á KR í úrslitaleik A-riðils. Hilmir Kristjánsson fór mikinn í liði Grindvíkinga og skoraði 34 stig í leiknum og tók 9 fráköst. Hjá KR var Eyjólfur Halldórsson atkvæðamestur með 18 stig.
Þjálfari Grindvíkinga er Guðmundur Bragason en þjálfari KR er Bojan Desnica.





