spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild kvennaGrindavík semur við Bryndísi Gunnlaugsdóttur

Grindavík semur við Bryndísi Gunnlaugsdóttur

Grindavík hefur samið við Bryndísi Gunnlaugsdóttur sem aðstoðarþjálfara nýliða Grindavíkur í úrvalsdeild kvenna á komandi tímabili. Bryndís mun því aðstoða Þorleif Ólafsson, sem tók við liðinu af Ólöfu Helgu Pálsdóttur Woods eftir að hún hafði stýrt liðinu til sigurs í úrslitakeppni fyrstu deildar kvenna.

Bryndís hefur komið við nokkuð víða sem leikmaður og þjálfari. Sem leikmaður lék hún með Grindavík, Breiðabliki, ÍR, Ármanni, Fjölni og Stjörnunni, en sem þjálfari hefur hún verið hjá Stjörnunni, ÍR, Ármanni og hjá Grindavík.

Tilkynning:

Bryndís er reynslumikill og góður þjálfari sem verður Þorleifi Ólafssyni til halds og traust í vetur. Bryndís kom inn í þjálfarateymið í lok síðasta tímabils en Grindavík tryggði sér sæti í efstu deild eftir frábært úrslitaeinvígi gegn Njarðvík.
Bryndís hefur komið nokkuð víða sem leikmaður og þjálfari. Hún lék með Grindavík, Breiðabliki, ÍR, Ármanni, Fjölni og Stjörnunni. Sem þjálfari hefur hún starfað hjá Stjörnunni, ÍR, Ármanni og hjá Grindavík. Bryndís sat lengi í stjórn KKÍ og hlaut silfurmerki sambandins að lokinni farsælli stjórnarsetu.
„Það er mikill fengur fyrir okkur hjá KKD. Grindavíkur að fá Bryndísi til starfa hjá meistaraflokki kvenna. Bryndís kom öflug inn í starfið í fyrra og við teljum okkur nú vera með frábært þjálfarateymi í þeim Lalla og Bryndísi. Við bíðum spennt eftir því að tímabilið hefjist,“ segir Ingibergur Jónasson, formaður KKD Grindavíkur.

Fréttir
- Auglýsing -