spot_img
HomeFréttirGrindavík Reykjanesmeistari 2012

Grindavík Reykjanesmeistari 2012

Viðureign Grindavíkur og Stjörnunnar í Reykjanesmóti karla fór hægt af stað í kvöld og voru bæði lið að hitta illa. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 15-18 fyrir Stjörnumenn. Grindavík var búið að elta allan leikinn. Um miðjan 2. leikhluta tókst Grindvíkingum að jafna og var leikurinn jafn það sem eftir var.
Brian Mills var stigahæstur hjá Stjörnunni í hálfleik með 16 stig en hjá Grindavík voru stigin frekar dreifð. Eftir annan leikhluta var staðan orðin 38-41 fyrir Stjörnuna. Í seinni hálfleik fóru Grindvíkingar að pressa og náðu Stjörnumenn ekki að leysa það eins vel og þeir vildu. Þó héldust stigin jöfn og eftir 3. leikhluta var staðan orðin 59-60. Samuel Zeglinski og Aaron Broussard voru þá búnir að spýta í lófana og voru orðnir stigahæstir fyrir heimamenn. Samuel með 15 stig og Aaron með 19 stig. Í fjórða leikhluta byrjuðu Grindavíkingar á því að komast yfir og héldu sér yfir til leiksloka og sigruðu leikinn með 7 stigum. Leikurinn endaði 82-77 Grindavík í vil sem eru Reykjanesmeistarar 2012 sama hvernig viðureign Keflavíkur og Breiðabliks fer en Grindavík hefur betur innbyrðis gegn Keflavík þó bæði lið hafi unnið fjóra leiki og tapað einum.
 
Stigahæstur fyrir heimamenn var Aaron Broussard með 29 stig 9 fráköst og 8 stolna bolta. Þar á eftir komu Samuel Zeglinski með 15 stig, Ómar Örn Sævarsson með 11 stig og Jóhann Árni Ólafsson með 12 stig.
 
Stigahæstir hjá Stjörnumönnum voru Justin Shouse með 22 stig og Brian Mills með 20 stig, 8 fráköst og 6 varin skot.
 
Mynd/ Úr safni: vf.is
 
Umfjöllun/Jenný Ósk
  
Fréttir
- Auglýsing -