KR tóku á móti Grindavík í fjórða leik í undanúrslitum Dominosdeildar karla. Það var duga eða drepast fyrir KR sem þurftu á sigri að halda til fá oddaleik. KR byrjuðu leikinn betur en Grindavík voru fljótir að koma í sér í gang og leiddu leikinn frá því um miðjan fyrsta leikhluta fyrir utan á einum tímapunkti í fjórða leikhluta þegar KR tókst að jafna til skammst tíma. KR litu ekki vel út í fyrri hálfleik og það var aðeins Brynjar Þór Björnsson sem var að skila einhverju fyrir liðið. Það var allt annað að sjá til þeirra í seinni hálfleik en þá kveiknaði á Helga Má Magnússyni og Brandon Richardson. En það dugði ekki til, Grindavík voru of sterkir og létu ekki fipast þrátt fyrir að KR sóttu hart að þeim. Aaron Broussard og Samuel Zeglinski leiddu vagninn fyrir Grindavík allan leikinn og Ólafsbræður komu mjög sterkir inn í seinni hálfleik. Grindavík því komnir í úrslit eftir að hafa sigrað í kvöld 88-92 og einvígið 3-1.
Byrjunarlið KR: Brynjar Þór Björnsson, Helgi Már Magnússon, Brandon Richardson, Finnur Atli Magnússon og Darshawn McClellan.
Byrjunarlið Grindavíkur: Jóhann Árni Ólafsson, Aaron Broussard, Samuel Zeglinski, Þorleifur Ólafsson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson.
Brynjar Þór skorar fyrstu tvær körfur KR í leiknum en Jóhann Árni skoraði þrist fyrir Grindavík á milli þeirra. KR mæta einbeittir til leiks í vörninni. Að sama skapi er vörnin hjá Grindavík mjög opin. En þeim gengur vel að skora og leikurinn er töluvert jafn. Um miðjan leikhlutan er vörnin hjá KR orðin slök og Grindavík skora nánast að vild og komast yfir í fyrsta skiptið í stöðunni 13-14. Grindavík tóku sig til í andlitinu og fóru að loka betur í vörninni og neyddist Finnur Atli til að taka þriggja stiga skot í einni sókninni. Helgi Magnús neyðist til að taka leikhlé þegar tvær og hálf mínúta voru eftir af leikhlutanum til að hrista aðeins upp í sýnum mönnum sem voru búnir að spila illa undanfarnar mínútur og Grindavík komnir í 15-19 eftir góðar körfu frá Sigurði Gunnari. Leikhléið bar ekki árangur og brenndu KR af þremur sniðskotum í röð. KR náðu aðeins að koma til baka á loka mínútunni og staðan eftir fyrsta leikhluta 21-24 fyrir Grindavík.
Þorleifur hóf annan leikhlutan með þrist fyrir Grindavík en Brynjar var fljótur að svara og bætti svo við öðrum strax í næstu sókn. Eftir slakan kafla hjá Grindavík virtist KR vera að koma sér inn í leikinn en þá kveiknaði aftur á Grindavík og juku þeir muninn í 8 stig. Brynjar Þór setti enn einn þristinn og reyndi að halda aftur af Grindavík en meðbyrinn var enn með þeim sem kristalaðist í því að Pettinella setti bæði vítaskotin sín niður. Eftir góða varnarvinnu hjá Sigurði Gunnari komst Grindavík í hraðaupphlaup og Broussard skoraraði örugglega og kom Grindavík í 33-43 og neyddist Helgi Magússon til að taka annað leikhlé. Broussard, Zeglinski og Sigurður Gunnar eru að spila mjög vel fyrir Grindavík og leiða stigaskorunina hjá þeim með 16, 10 og 9 stig hver. Á meðan er aðeins einn maður sem er að halda KR uppi í stigaskorun, Brynjar Þór og var hann með 17 stig í hálfleik. Grindavík því yfir 39-47 í hálfleik.
KRingar byrja seinni hálfleikinn af gríðarlegum krafti og skora fyrstu 7 stigin, þar af Richardson með 5, og munurinn aðeins eitt stig eftir tvær mínútur. Broussard smellir svo þrist fyrir Grindavík og kemur þeim sex stigum yfir. Jóhann Árni setur þrist og og fiskaði svo tvo ruðninga á stuttum tíma, fyrst á Richardson svo McClellan. Grindavík í miklum ham og Zeglinski bombar niður þrist og Grindavík aftur komnir með 10 stiga forustu, 48-58. Frábær byrjun KR horfin sem dögg fyrir sólu. Grindavík voru komnir 15 stigum yfir en þá tók KR 8-0 syrpu þar sem Helgi Már setti tvo þrista. Staðan 58-65 með tvær og hálfa mínútu eftir af leikhlutanum og Sverrir Þór Sverrisson sá aðeins einn kost í stöðunni og það var að taka leikhlé til að reynda stoppa þetta gríðarlega flæði sem KRingar voru komnir í. Það herbragð bar árangur því bæði liðin skiptust á að skora eftir það. Staðan 64-70 í lok þriðja leikhluta.
Þegar tvær og hálf mínúta eru liðnar af fjórða leikhluta fær Ólafur Ólafsson dæmda á sig óíþróttamannslega villu og KR minnka muninn í 3 stig. Liðin skora svo á víxl og orðið um hörkuleik á ræða. En þá setti Þorleifur Ólafsson góðan þrist en KR svara strax, en þó aðeins tveggja því Martin steig á línunna. KR náði ekki að halda dampi og Grindavík tókst að komast í 77-83, leiddir áfram af Broussard. Rétt fyrir þriggja mínútna markið smellir Richardson niður svakalegum þrist og staðan 82-83. Jóhann skoraði í næstu sókn Grindvíkinga en Richardson dúndraði bara niður öðrum þrist og jafnaði leikinn. Broussard kom þó Grindavík aftur yfir með góðum þrist úr horninu. Hann var svo sendur á vítalínuna og kom Grindavík í 86-90 með rétt rúma mínútu til leiksloka. Brynjar Már skoraði fyrstu stigin sín í seinni hálfleik af vítalínunni og minnkaði muninn í tvo stig. En það var ekki nóg, Broussard kláraði leikinn með því að setja tvo víti og Grindavík sigra því 88-92.
Stigahæstir hjá KR voru: Brandon Richardson 21 stig/5 stoðsendingar/4 stolnir boltar, Brynjar Þór Björnsson 19 stig/4 stoðsendingar og Helgi Már Magnússon 16 stig/8 fráköst/4 stoðsendingar.
Stigahæstir hjá Grindavík voru: Aaron Broussard 32 stig/7 fráköst/4 stoðsendingar, Samuel Zeglinski 23 stig/5 fráköst/5 stoðsendingar, Jóhann Árni Ólafsson 11 stig/5 fráköst og Þorleifur Ólafsson 11 stig/7 fráköst.
Leikmaður leiksins: Aaron Broussard
Mynd/ [email protected] – Aaron reyndist KR erfiður viðureignar




