HomeFréttirGrindavík halda áfram að vera sterkar heima

Grindavík halda áfram að vera sterkar heima

Grindavík tóku á móti Haukum í 3. umferð Dominosdeildarkvenna í kvöld. Hart var barist en að lokum var það Grindavík sem var sterkari aðilinn og bar sigur úr bítum 73-62. Pálína Gunnlaugsdóttir var ekki heillum horfin eins og í seinustu umferð og skoraði 16 stig, tók 11 fráköst og átti 5 stoðsendingar í kvöld. Lauren Oosdyke, María Ben Erlingsdóttir og Ingibjörg Jakobsdóttir áttu einnig afbragðs leik fyrir Grindavík.
Hjá Haukum var það Lele Hardy sem var atkvæðamest að vanda með bullandi háar tölur eða 31 stig og 26 fráköst, þar af 13 sóknarfráköst. En sóknarfráköst voru eitthvað sem Haukar áttu ekki í vandræðum með í kvöld, en þær gripu 29 slík stykki! Grindavík gátu ekki stigið út en það kom ekki að sök fyrir þær þar sem að Haukum gekk ekkert að notfæra sér þessi auka skottækifæri, en nýtingin þeirra var vægast sagt skelfileg. Þær voru aðeins með 26% nýtingu í tveggjastiga skotum og 15% í þriggjastiga. Gunnhildur Gunnarsdóttir og Jóhanna Björk Sveinsdóttir voru sérlega ólánssamar með 1/14 og 1/16 í skottilraunum.
 
Byrjunarlið Grindavíkur: Lauren Oosdyke, Pálína Gunnlaugsdóttir, Helga Rut Hallgrímsdóttir, Ingibjörg Jakobsdóttir og María Ben Erlingsdóttir.
 
Byrjunarlið Hauka: Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Lele Hardy, Dagbjört Samúelsdóttir og Jóhanna Björk Sveinsdóttir.
 
Haukar byrjuðu leikinn af krafti og tóku 4 sóknarfráköst á fyrstu mínútu leiksins og komust í 0-5. Þá vaknaði Grindavík og kom sér inn í leikinn. Næstu mínútur voru hnífjafnar. Mikill stígandi kom svo í Grindavík og komust þær í 17-10. Haukar komu þá aðeins til baka en Grindavík skoruðu seinustu stig leikhlutans og leiddu 22-17.
 
Maríu Ben Erlingsdóttir var Haukum erfið og skoraði hún að vild í teignum. Lauren Oosdyke smellti svo þrist í andlitið á Haukum en hún steingleymdi að kalla spjaldið. Dagbjört Samúelsdóttir refsaði henni fyrir það þegar hún varði skot hennar illilega í næstu sókn Grindavíkur. Dagbjört varð svo alelda fyrir utan þriggja stigalínuna og smellti niður tveimur í röð og kom Haukum aftur inn í leikinn. Haukar enduðu svo fyrri hálfleikinn á 9-2 kafla og tókst að jafna leikinn 42-42.
 
Stigahæstar í hálfleik voru María Ben Erlingsdóttir og Lauren Oosdyke með 14 stig hvor fyrir Grindavík og hjá Haukum var Lele Hardy einnig með 14 stig en bætti við 13 fráköstum.
 
Haukar komu inn í seinni hálfleikinn af miklum krafti og þrátt fyrir að skora ekki mikið þá leiddu þær leikhlutann 6-0 eftir 5 mínútur. Grindavík áttu sér enga von á þeim tíma og náðu varla varnarfrákasti. Það tók Grindavík 8 mínútur að vakna til lífsins og var þar að verki engin önnur en Pálína Gunnlaugsdóttir sem setti niður þrist, en hún var varla búin að sjást í sókninni hjá Grindavík það sem af var leiknum þrátt fyrir að eiga prýðisgóðan leik. Ekki var mikið skorað í leikhlutanum en hann var gríðarlega skemmtilegur þar sem baráttan var í fyrirrúmi og var barist um hvern sentimetra. Grindavík enduðu svo á að vinna leikhlutann með einu stigi og leiddu 51-50.
 
Þá var komið að Grindavík að byrja af krafti og skoruðu þær 7-0 á fyrstu 3 mínútunum. Jóhanna Björk Sveinsdóttir lenti í samstuði við Ingibjörgu Jakobsdóttur þegar Ingibjörg var að sækja að körfunni og fékk Jóhanna högg á andlitið og lá eftir á vellinum. Hún þurfti að fara af leikvelli og kom ekki meira við sögu í leiknum. Oosdyke fékk tæknivillu og þar með sína fjórðu villu þegar 4. leikhlutinn var hálfnaður og þurfti að fara á bekkinn í smá stund. Það kom ekki að sök fyrir Grindavík þar sem ekkert gekk upp hjá Haukum. Þær fengu dæmdar á sig 3 sek og meira að segja þegar Gunnhildur Gunnarsdóttir stal boltanum og komst alein í hraðaupphlaup þá brenndi hún af sniðskotinu. Pálína kom svo með rýtinginn þegar 2 mínútur voru til leiksloka, glæsilegur þristur.
 
 
Mynd úr safni/ Pálína var drjúg að vanda
 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -