spot_img
HomeFréttirGood Angels á toppnum - burstuðu Rucon í gær

Good Angels á toppnum – burstuðu Rucon í gær

Helena Sverrisdóttir og Good Angels Kosice byrja leiktíðina í Slóvakíu með látum en Good Angels hafa unnið alla fjóra deildarleiki sína til þessa. Síðasta fórnarlamb meistaranna var SKBD Rucon en Good Angels rassskelltu andstæðinga sína á heimavelli í gærkvöldi 89-48.
Helena var heldur í rólegri kantinum og gerði fimm stig í leiknum. Þetta hefur þó verið upp og ofan í deildinni hjá Helenu, 13 stig, 4 stig, 35 stig og 5 stig í gærkvöldi.
 
Good Angels 100-30 Cassovia K.
Good Angels 124-13 Poprad
MBK Ruzomb 56-68 Good Angels
Good Angels 89-48 SKBD Rucon
 
Næsti leikur Good Angels er þann 6. október á útivelli gegn Piestanske C.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -