Íslendingar lutu í lægra haldi fyrir Ísraelum á útivelli í kvöld 92-75. Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur með 21 stig og Jón Arnór Stefánsson skoraði 20. Íslendingar geta svo sem staðið uppréttir frá þessum leik þrátt fyrir 18 stiga tap. Stóðu í heimamönnum allt fram á síðustu 5 mínútur leiksins þegar Ísraelar hófu að slíta sig almennilega frá.
Íslensku strákarnir skoruðu fyrstu körfuna og byrjuðu leikinn gríðarlega vel. Ísraelar komust ekki yfir fyrr en 17 mínútur voru liðnar af leiknum. Góð vörn og sókn var einkennandi í byrjun, barátta og sá leikur sem Íslendingar vilja sjá.
Ísraelar höfðu svo undirtökin í seinni hálfleik en íslenska liðið var aldrei langt undanog það var ekki fyrr en í blálokin sem munurinn fór yfir 15 stig.
Íslendingar eiga hrós skilið fyrir leikinn þar sem liðið barðist allan tímann og sýndi að hið stóra tap á heimavelli var ekki raunverulegur munur á liðunum.
Eins og fyrr segir var Jakob Örn stigahæstur með 21 stig, Jón Arnór skoraði 20, Finnur Atli Magnússon og Pavel Ermolinskij skoruðu 10 stig hvor en Hlynur Bæringsson tók 11 fráköst.






