HomeFréttirGetur Keflavík verið Keflavík í Njarðvík?

Getur Keflavík verið Keflavík í Njarðvík?

 

Fjöldinn allur leikja er í körfubolta í dag og í kvöld. Dominos og 1. deild deild, bæði karla og kvenna.

 

Í Dominos deild kvenna tekur Snæfell á móti Njarðvík. Fyrir leik eru liðin í tveimur neðstu sætum deildarinnar, Snæfell þó með fjóra sigra úr fyrstu tí leikjunum á meðan að Njarðvík leitar enn að fyrsta sigrinum.

 

Í Dominos deild karla fara fram fjórir leikir. Stærstur leikja þar líklega grannaslagur Keflavíkur og Njarðvíkur sem hefst kl. 19:15 og er í beinni útsendingu Stöð 2 Sport. Fyrir leikinn eru liðin jöfn að stigum í deildinni í 3. til 6. sæti.

 

Þó hvorugt lið hafi unnið þann stóra síðan árið 2008, þá fara þar tvö af allra sigursælustu liðum deildarinnar frá upphafi. Njarðvík með 17 Íslandsmeistaratitla, en Keflavík nokkru fyrir aftan með 9 slíka.

 

 

 

 

 

Leikir dagsins

 

Dominos deild kvenna:

Snæfell Njarðvík – kl. 14:00
 

 

Dominos deild karla:

Njarðvík Keflavík – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
 

Stjarnan Haukar – kl. 19:15 
 

ÍR Grindavík – kl. 19:15 
 

Valur Þór Akureyri – kl. 19:15 
 

 

1.deild karla:

Gnúpverjar Vestri – kl. 14:45 (Fagralundi)
 

Snæfell Fjölnir – kl. 16:00
 

Skallagrímur Hamar – kl. 19:15
 

 

1. deild kvenna:

Fjölnir KR – kl. 18:00
 

Fréttir
- Auglýsing -