spot_img
HomeFréttirGabríel Sindri í Ljónagryfjunni næsta vetur

Gabríel Sindri í Ljónagryfjunni næsta vetur

 

Njarðvík hefur gert samning við bakvörðinn Gabríel Sindra Möller um að leika með liðinu á komandi tímabili í Dominos deild karla. Gabríel er uppalinn í Ljónagryfjunni en söðlaði um á síðasta tímabili og lék með Gnúpverjum í 1. deildinni við góðan orðstír.

 

Gabríel hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands, sem og er hann í æfingahóp undir 20 ára liðsins sem leika mun í A deild Evrópumótsins í sumar. Þá hlaut hann á dögunum Elfarsbikarinn í Njarðvík, en þau verðlaun eru veitt þeim leikmanni sem efnilegastur þykir í yngri flokkum Njarðvíkur.

Fréttir
- Auglýsing -