spot_img
HomeFréttirFyrsti völlur sinnar tegundar á Íslandi

Fyrsti völlur sinnar tegundar á Íslandi

{mosimage}

 

 

Nýr og glæsilegur körfuknattleiksvöllur er nú í byggingu við Holtaskóla í Reykjanesbæ. Völlurinn er sá fyrsti sinnar tegundar á Íslandi með gólfefni sem samþykkt er af alþjóðakörfuknattleikssambandinu FIBA.

Yfir malbikað undirlag eru lagðar svokallaðar „Power game“ flísar frá fyrirtækinu Sport Court í Bandaríkjunum sem hannað hefur keppnisvelli utandyra í rúm 30 ár. Flísarnar hleypa vatni í gegnum sig og því er hægt að spila körfubolta á vellinum þó úti rigni.

Reykjanesbær í samvinnu við Tómas Tómasson og Sigurð Ingimundarson landsliðsþjálfara koma að gerð vallarins en Ryan Burke frá Sport Court var fenginn til landsins til þess að fylgjast með og stjórna gerð vallarins. 

„Power game flísarnar fara betur með bak og hné leikmanna en malbikaðir vellir. Það er einnig hættuminna að detta á flísarnar heldur en malbikið,“ sagði Tómas Tómasson í samtali við Víkurfréttir. Ráðgert er að völlurinn verði fullbúinn fyrir Ljósanótt og þá verði nokkuð um skemmtilegar uppákomur á vellinum.

Völlurinn sjálfur verður í fánalitum íslenska fánans, stærsti flötur vallarins er blár með rauðri umgjörð. Vallarlínurnar verða svo málaðar hvítar.  

Frétt og mynd af www.vf.is

 

 

{mosimage}

Fréttir
- Auglýsing -