HomeFréttirFyrsti sigur Vals í efstu deild í 10 ár

Fyrsti sigur Vals í efstu deild í 10 ár

Valsmenn unnu sinn fyrsta sigur í efstu deild í 10 ár í kvöld þegar þeir fengu Þór frá Þorlákshöfn í heimsókn, 97-89.  Valsmenn höfðu gengið í gegnum sigurlaust tímabil í efstu deild fyrir tveimur árum en þar  áður hafði liðið ekki leikið í efstu deild í 7 ár.  Það var því vel fagnað i leikslok hjá baráttuglöðum Valsmönnum.  Tölfræðin úr leiknum segir margt um leikinn en Valsmenn tóku jafn mörg sóknarfráköst og öll fráköst Þórs til samans eða 35 stykki.  Þar af áttu félagarnir Birgir Björn Pétursson og Chris Woods hjá Val 27 sóknarfráköst saman, sem er jafn mikið og varnarfráköst Þórs í leiknum.  Ótrúleg tölfræði gegn liði með landsliðs-miðherjan og reynslubolta á við Nemanja Sovic innanborðs.  
 
Leikurinn fór hægt af stað, bæði lið keyrðu boltan mikið undir körfuna en fóru illa með færin en bæði lið voru með 29% nýtingu eftir rúmlega 5 mínútur af leik.  Gestirnir frá Þorlákshöfn tóku frumkvæðið þegar leið á fyrsta leikhluta og höfðu yfir 10-15.  Valsmenn voru þó aldrei langt frá og voru komnir yfir í stöðunni 20-19.  Baldur Ragnars kom gestunum aftur yfir  sem dugði þar til á lokasekúndum leikhlutans þegar Benedikt Blöndal setti niður glæsilegt þriggja stiga skot sem tryggði Val 23-21 forskot eftir fyrsta leikhluta. 

Gunnlaugur Elsuson byrjaði annan leikhluta með mjög áhugaverðu skoti rúmum metra fyrir utan þriggja með mann í sér sem hann setti glæsilega, 26-21.  Mike Cook Jr. mætti þá til leiks og setti 9 af næstu 11stigum gestana.  Það dugði þó skamt því Valsmenn leiddu áfram og höfðu yfir 37-31 þegar annar leikhluti var hálfnaður.  Þegar þrjár og hálf var eftir tók Valur leikhlé í stöðunni 40-38.  Cook Jr. hafði þá sett 19 stig af 38 stigum gestana og var nánast óstöðvandi.  Þór var að gefa alveg fáránlegt magn sóknarfrákasta sem Valsmenn nýttu sér til hins ýtrasta.  Gestirnir sóttu á undir lok fyrri hálfleiks og höfðu jafnað leikinn þegar innan við ein mínúta var eftir, 46-46, en þá tóku Valsmenn annað leikhlé.  Oddur Ólafsson sá svo til þess að Valsmenn fóru með eins stigs forskot í hálfleik, 48-47. 

Stigahæstur Valsmanna var Chris Woods með 16 stig og 11 fráköst en næstu menn voru Birgir Pétursson með 10 stig og 12 fráköst og Oddur Ólafsson með 9 stig.  Hjá Þór var Mike Cook Jr. stigahæstur með 20 stig en næstu menn voru Baldur Ragnarsson með 10 stig og Nemanja Sovic með 6 stig.  

Athygli vakti að Valur var gjörsamlega að rústa Þór í frákasta baráttunni en heimamenn höfðu tekið 30 fráköst í hálfleik gegn 13 fráköstum gestana.  Þar af voru 18 fráköst Vals sóknarfráköst.  Birgi Péturssyni vantaði því aðeins eitt frákast uppá að hafa tekið jafn mörg og allt lið gestanna í hálfleik.  

Valsmenn virtust ætla að mæta með sama krafti inní þriðja leikhluta og héldu forskotinu fyrstu mínúturnar.  Gestirnir tóku góðar rispur inná milli og komust yfir í stöðunni 52-53 með tveimur góðum sniðskotum frá Baldri Ragnars sem nýtti sér hraðan vel og labbaði framhjá varnarmönnum Vals.  Valsmenn voru þó komnir fjórum stigum yfir aftur þegar fjórar mínútur voru liðnar af leikhlutanum, 60-56.  Birgir Pétursson var að spila feiki vel og andlitið á Nemanja Sovic segði alla söguna ef hægt væri að koma því fyrir í þessum texta en Birgir hafði sett 7  stig á fyrstu 4 mínútum leikhlutans.  Valsmenn héldu uppteknum hætti og nýttu sér slakan varnarleik gestana.  Þegar tvær og hálf mínúta var eftir af þriðja leikhluta tók Þór leikhlé í stöðunni 71-65.  Valsmenn virtust ætla að fara inní fjórða leikhluta með 6 stiga forskot, 77-71, en Gunlaugur Elsusun braut þá klaufalega á Mike Cook Jr. í þriggja stiga skoti þegar 0,3 sekúndur voru eftir.  Cook tókst þó aðeins að nýta eitt skot af þessum þremur og því munaði 5 stigum á liðunum þegar tíu mínútur voru eftir, 77-72. 

Það var alveg ljóst að skilaboðin frá Benendikt, þjálfara Þórs, fyrir fjórða leikhluta var varnarleikur.  Bekkurinn öskraði með og þeir ætluðu að ná upp stemmingu í liðinu.  Þorsteinn Már Ragnarsson setti fyrstu fimm stig gestana í fjórða leikhluta og Ragnar Nat varði skot Chris Woods í næstu sókn.  Það munaði bara tveimur stigum á liðunum, 79-77, en þá eru dómarar leiksins búnir að missa þolinmæðina á þjálfara Þórs og dæmdu tæknivillu á bekkinn.  Valsmenn fengu því tækifæri á að auka forskotið aftur sem Rúnar Ingi Erlingsson gerði, 83-77, eftir að Ragnar Gylfa hafði sett niður annað vítið fyrir tæknivilluna.  Benedikt tók svo leikhlé fyrir gestina þegar 8 mínútur voru eftir í stöðunni 85-77.  Gestirnir skoruðu næstu 4 stig leiksins þangað til Birgir svaraði fyrir Valsmenn, 87-81 og fjórði leikhluti hálfnaður.  Þór tók svo leikhlé hálfri mínútu síðar.  Valsmönnum tókst að bæta í forskotið á næstu mínútunni og höfðu náð því upp 8 stig þegar þrjár mínútur voru eftir, 91-83.  Gestirnir fóru þá að pressa Valsmenn hátt og sýndu loksins ákafan í vörninni sem hafði vantað uppá framan af í leiknum.  Varnarleikurinn var að gefa vel af sér því þegar ein mínúta var eftir munaði aðeins 4 stigum á liðunum. Nær komust gestirnir þó ekki því Valsmenn áttu svo seinasta orðið í leiknum og tókst að tryggja sér glæsilegan sigur á Þór 97-98.  

Stigahæstur í liði Vals var Chris Woods með nokkuð laglega tröllatvennu, 30 stig, 24 fráköst og 5 stoðsendingar.  Ekki síðri tröllatvennu skilaði Birgir Björn Pétursson með 23 stig og 25 fráköst og 59% nýtingu.  Næstur á blað var Oddur Ólafsson með 20 stig og 5 stoðsendingar.

Hjá Þór var Mike Cook Jr. stigahæstur með 32 stig og 7 fráköst en næstu menn voru Baldur Þór Ragnarsson með 16 stig og 6 stoðsendingar og Ragnar Nat með 14 stig og 10 fráköst.


Tölfræði leiksins 


Mynd/ [email protected] – Birgir Björn var frábær í liði Vals í kvöld

Umfjöllun/ [email protected]  

Fréttir
- Auglýsing -