Rúnar Birgir Gíslason er stjórnarmaður hjá KKÍ en hann hefur haft veg og vanda að því að innleiða draumaliðsleik Domino´s og KKÍ. Þetta fyrirbrigði er orðið alþekkt og öllu jöfnu talað um ,,fantasy" leiki sem margir ættu nú orðið að þekkja. Hér á Íslandi kveður þó við nýjan tón því einnig mun Domino´s deild kvenna verða með draumaliðsleik.
Rúnar veit ekki betur en að þetta sé í fyrsta sinn sem að draumaliðsleikur sé settur upp á kvennadeild en leikurinn tekur mið af raunverulegu framlagi leikmanna í leikjum Dominosdeildarinnar. Það er fyrirtækið MBT í Litháhen sem sér um mótakerfi og tölfræðireikninga KKÍ og þá á fyrirtækið einnig draumaliðsleikinn.
Sömu verðlaun eru í boði í kvennadeildinni og karladeildinni og ber að fagna þessu glæsilega framtaki KKÍ og hvetja alla til að taka þátt, ekki síst í kvennadeildinni en keppni þar hefst í kvöld.






