HomeFréttirFSu sigraði Laugdæli í lokaleiknum

FSu sigraði Laugdæli í lokaleiknum

 
FSu strákarnir léku sinn síðasta leik í 1. deild Íslandsmótsins í körfuknattleik á þessu leiktímabili föstudagskvöldið 4. mars sl. og tóku á móti Laugdælum.
Í fyrsta leikhluta tóku gestgjafarnir strax forystuna, staðan 9 – 3 eftir 2 mínútur, 12 – 7 eftir 4 mínútur, 19 – 15 eftir 7 mínútur og 25 – 15 í lokin. Í öðrum leikhluta sóttu Laugdælir heldur á, þar sem Valur Orri Valsson FSu og Bjarni Bjarnason Laugdælum voru í aðalhlutverkum, sá fyrrnefndi með 10 stig og Bjarni 13, þar af 9 af 9 teknum vítaskotum. Stöðutölurnar 31 – 25, 33 – 29, 40 – 31 og 45 – 41 í lokin sýna gang leikhlutans þar sem FSu náði 20 stigum en Laugdælir 26, þannig að FSu leiddi með 4 stigum í hálfleik.
 
Framan af einkenndist 3. leikhluti af jafnræði í mistökum beggja liða og staðan 58 – 55 þegar um þrjár og hálf mínúta var eftir, en þá tók FSu leikinn fastari tökum og lauk leikhlutanum með áhlaupi og stöðunni 72 – 58. Í síðasta leikhlutanum sáu Laugdælir lítt til sólar, tókst þó að minnka muninn niður í tíu stig, 82 – 72 , þegar tæpar 6 mínútur voru til leiksloka, en eftir það hélt FSu liðið nokkuð öruggri forystu og lauk leiknum með 16 stiga sigri heimapilta, 104 stig gegn 88.
 
Þar með hafnaði FSu liðið í 6. sæti með 20 stig, en Laugdælir í því 8. með 8 stig og sitja bæði lið því sem fastast í deildinni.
 
Stig FSu: Valur Orri Valsson 38, Guðmundur Auðunn Gunnarsson 24, Sæmundur Valdimarsson 13, Björn Jóhannesson 9, Arnþór Tryggvason 8, Gísli Gautason 5, Sigurbjörn Jónsson 3, Jóhannes Páll Friðriksson 2 og Björn Pálmarsson 2.
Stig Laugdæla: Pétur Már Sigurðsson 23, Bjarni Bjarnason 20, Sigurður Orri Hafþórsson 17, Anton Kárason 14, Jón H. Baldvinsson 9, Arnór Yngvi Hermundarson 3 og Helgi Hrafn Ólafsson 2.
 
Stefán Böðvarsson
Fréttir
- Auglýsing -