Leik Hamars og Þórs frá Akureyri í 16- liða úrslitum Poweradebikarkeppni karla seinkaði í gær vegna smá óhapps hjá Þórsurum á suðurleið og það tók Þórsara 2-3 mínútur að koma sér í gang inn á vellinum og eftir 4-0 snéru þeir leiknum sér í hag og leiddu 16-21 eftir 1.leikhluta.
Hamars-menn tóku sinn leik aðeins fastari tökum eftir þetta og unnu næsta leikhluta 30-18 þar sem nánast allt fór ofaní en Þórsarar voru heldur ekki að spila illa heldur var Ragnar erfiður í teignum og Hamar hirti nánast öll fráköst. Þórsarar voru sprækari í seinni hálfleik og náðu alltaf að minnka forystu heimamanna sem þó aldrei varð neitt afgerandi. Þegar um 4 mínútur voru eftir minnkaði Þór muninn í 1 stig 90-89 en nær komust þeir ekki þó svo möguleikar þeirra væru til staðar fram á síðustu mínutu.
Sóknarleikur liðanna var góður en athyglisvert var að sjá að frákastarimman fór 52-23 fyrir Hamar og var Ragnar með 21 frákast eða nærri jafn mikið og allt Þórsliðið! Hamarsmenn töpuðu aftur á móti 21 bolta á móti 10 og þar geta þeir bætt sig. Hjá Þór vildi boltinn bara ekki ofaní síðustu mínútuna meðan Hamar fékk 6 vítaskot á síðustu 24 sekúndunum til að skora 100. stigið en það kom þó ekki fyrr en í næst síðasta vítinu og 100-96 niðurstaðan og Hamar áfram í 8 liða úrslit!
Bretinn Louie átti góðan leik með 27stig/7 fráköst sem og Ragnar sem tók 21 frákast og setti 24 stig. Lárus var með 16 stig, Halldór 10, Svavar og Björgvin 8, Bjartmar 4, Stefán 2 og Emil 1 stig.
Hjá Þór var Eric J.Palm með 37 stig/6 fráköst/6 stoðs. , Spencer Harris 26 stig, Sindri Davíðs 15, Darco Milosevic 11, Sigmundur Óli 5 og Guðmundur Ævar 2 stig.
Hamarsmenn eru því komnir í 8-liða úrslit bikarkeppninnar en Þórsarar hafa lokið þátttöku sinni.
Mynd/ Úr safni
Umfjöllun/ Anton Tómasson