HomeFréttirFráfall fyrrverandi landsliðsþjálfara

Fráfall fyrrverandi landsliðsþjálfara

 Mbl.is birti í dag frétt þess efnis að fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands og fyrrverandi þjálfari ÍR, Jim Dooley er látinn, 69 ára að aldri.  
 

 ”Bandaríski körfuknattleiksþjálfarinn Jim Dooley er látinn, 69 ára að aldri, eftir erfið veikindi að undanförnu, en hann var landsliðsþjálfari Íslands og þjálfari ÍR-inga keppnistímabilið 1982-1983.

Dooley á að baki 47 ára feril sem körfuknattleiksþjálfari en auk þess að þjálfa hér á landi umrætt tímabil kom hann hingað til lands til að halda námskeið í körfubolta. Hann þjálfaði aðallega skólalið og unglingalið í Bandaríkjunum á árunum 1965 og fram á þetta ár þegar hann varð að láta af störfum vegna veikindanna.

Hann vann mikið með Pétri Guðmundssyni, fyrrum atvinnumanni í NBA og landsliðsmanni Íslands, sem spilaði einmitt undir hans stjórn hjá ÍR”

tekið af www.mbl.is 

 

[email protected] 

 

Fréttir
- Auglýsing -