HomeFréttirFormsatriði í Keflavíkinni

Formsatriði í Keflavíkinni

 Það var í raun formsatriði fyrir Keflvíkinga að klára leikinn gegn KFÍ í kvöld þegar liðin mættust í Iceland Express deildinni. Gestirnir frá Ísafirði náðu að halda í við heimamenn í fyrsta fjórðung en eftir það fór að myndast gjá í stigaskorun og fór svo að Keflavík landaði öruggum sigri, 123-87.
 Leikur þessi fór nánast eins og eftir bókinni. Sem fyrr segir voru gestirnir inní leiknum fram eftir fyrsta fjórðung en eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi lenda. KFÍ liðið er nú endanlega fallið í 1. deild með þessum ósigri á meðan Keflvíkingar deila 3-4 sæti með Grindvíkingum. 
 
 
Fréttir
- Auglýsing -