HomeNeðri deildir1. deild karlaFlautað til leiks í Icelandic Glacial mótinu: Hörkuslagir í Þorlákshöfn

Flautað til leiks í Icelandic Glacial mótinu: Hörkuslagir í Þorlákshöfn

Icelandic Glacial mótið fer fram í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn dagana 13.–20. september, þar sem leikið verður bæði í karla- og kvennaflokki. Mótið er mikilvægur liður í undirbúningi liðanna fyrir komandi keppnistímabil.

Í karlakeppninni taka þátt Álftanes, Njarðvík, KR og gestgjafarnir í Þór Þorlákshöfn. Mótið hefst sunnudaginn 13. september þegar Álftanes mætir Njarðvík kl. 16:00 og Þór Þ. tekur á móti KR kl. 18:00. Miðvikudaginn 16. september eigast við KR og Álftanes kl. 18:00 og Þór Þ. og Njarðvík kl. 20:00. Lokaumferðin fer fram laugardaginn 19. september þegar Njarðvík leikur gegn KR kl. 16:00 og Þór Þ. mætir Álftanesi kl. 18:00.

Í kvennakeppninni etja kappi lið Þórs Þorlákshafnar, ÍR og Selfoss. Mánudaginn 14. september mætast Þór Þ. og ÍR kl. 19:15, fimmtudaginn 17. september spila ÍR og Selfoss kl. 19:15, og mótinu lýkur sunnudaginn 20. september með leik Þórs Þ. og Selfoss kl. 15:30.

Fréttir
- Auglýsing -