Það verður nóg um að vera í 1. deild karla í kvöld en alls fara fjórir leikir fram samtímis klukkan 19:15.
Í Smáranum tekur Breiðablik á móti Fjölni á meðan Hamar fær Þór Akureyri í heimsókn í Hveragerði. Í Borgarnesi eigast við Skallagrímur og ÍA í spennandi Vesturlandsslag og í Þorlákshöfn mætast Þór Þ. og KFG.




