spot_img
HomeBikarkeppniFjölnir örugglega áfram í VÍS bikarkeppninni

Fjölnir örugglega áfram í VÍS bikarkeppninni

Leikur Fjölnis og ÍA í 32 liða úrslitum VÍS bikarins náði aldrei að verða spennandi. Yfirburðir Fjölnis komu í ljós strax á fyrstu mínútum og sú forysta sem náðist í fyrsta leikhluta varð aldrei í neinni hættu þrátt fyrir ágætt áhlaup Skagamanna í þriðja leikhluta.

Atkvæðamestir í liði Fjölnis voru Brynjar Kári Gunnarsson 23 stig og 7 fráköst og Viktor Steffensen með 15 stig.

Hjá Skagamönnum var Styrmir Jónasson með 23 stig og 8 fráköst og Þórður Freyr Jónsson með 19 stig og 6 stoðsendingar

Tölfræði leiks

Myndasafn

Önnur úrslit kvöldsins

Umfjöllun, myndir, viðtöl / Gunnar Jónatansson

Fréttir
- Auglýsing -