spot_img
HomeFréttirFjölnir nær sínum fyrsta sigri

Fjölnir nær sínum fyrsta sigri

Haukar tóku á móti Fjölni í Schenkerhöllinni í kvöld. Bæði lið hafa byrjað deildina illa, Haukar einungis með einn sigur á meðan að Fjölnir hafa tapað öllum sínum leikjum.
Fjölnir landar sínum fyrsta sigri eftir glæsilega frammistöðu Jones. Fanney snýr sig illa en klára leikinn. Við bíðum frekari fregna um framhaldið.
 
Byrjunarlið Hauka: Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Dagbjört Samúelsdóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Sierra Evans.
 
Byrjunarlið Fjölnis: Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir, Fanney Lind Guðmundsdóttir, Bergdís Ragnarsdóttir, Britney Jones og Eva María Emilsdóttir.
 
Haukar byrjuðu leikinn af krafti og voru fljótar að komast í 9-2. Við það tók Fjölnir aðeins við sér og Britney Jones og Fanney Lind Guðmundsdóttir voru nálægt því að koma þeim inn í leikinn þegar þær löguðu stöðuna í 16-12. En þegar þrjár mínútur voru eftir af fyrsta leikhlutanum þá missteig Fanney sig mjög illa þegar hún var að berjast um frákast og þurftu að fara af velli til aðhlynningar.
Þá voru Haukar fljótar að koma sér 10 stigum yfir, en þökk sé góðri þriggja stigakörfu hjá Jones þá tókst þeim ekki að stinga þær af en leiddu þó með sjö stigum í lok leikhlutans, 24-17.
 
Með góðu liðsspili juku Haukar forustuna í 13 stig í upphafi annars leikhluta, 30-17.
Á þrettándu mínútu kom Fanney aftur inná, meira í orði en á borði, því hún gat eiginlega ekki stigið í fótinn og haltraði einfætt með. En það virtist þó gefa Fjölni kraft að fá hana inná því að þá tóku þær við sér og með fullt af sóknarfráköstum og funheitri Jones þá enduðu þær fyrri hálfleikinn einu stigi yfir, 36-37, með næstum því flautukörfu frá Jones, en það voru einungis 2 sek. eftir.
 
Þriðji leikhlutinn var hnífjafn og skiptust liðin á forustunni. Haukar höfðu yfirhöndina, en einungis rétt svo og voru farnar að koma sér í smávægileg villu vandræði. Þær leiddu þó 58-56.
 
Fanney kom Fjölni strax aftur yfir eftir einungis 22 sek. þegar svæðisvörn Hauka, sem hafði gengið svo vel fram að þessu, skildi hana eftir á auðum sjó. Það virtist henta Fanneyju vel að haltra bara á milli þriggjastigalínanna í fjórða leikhlutanum því hún átti eftir að setja tvær aðrar áður en yfir lauk. Fjölnir lét forustuna aldrei af hendi eftir þetta og ef risa þristur Jones, góðan meter frá línunni þegar rétt rúmar 2 mínútur voru eftir, slökkti ekki í öllum vonum Hauka, þá gerði þristur Heiðrúnar Hörpu Ríkharðsdóttur það mínútu síðar.
Fjölnir stóð því uppi sem sigurvegari 79-73 og náði sér í sinn fyrsta sigur í Domino’s deildinni.
 
Stigahæstar hjá Haukum: Siarre Evans 22 stig/25 fráköst/6 stoðsendingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 15 stig/4 fráköst, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 13 stig/2 fráköst, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 12 stig/4 fráköst.
 
Stigahæstar hjá Fjölni: Britney Jones 42 stig/7 fráköst/6 stoðsendingar, Fanney Lind Guðmundsdóttir 11 stig/6 fráköst, Bergdís Ragnarsdóttir 8 stig/11 fráköst, Eva María Emilsdóttir 13 fráköst (þar af 7 sóknarfráköst)/2 varin skot.
 
Leikmaður leiksins: Britney Jones
 
 
Umfjöllun: K. Bergmann
Fréttir
- Auglýsing -