Grafarvogspiltar í Fjölni gerðu allt rétt í kvöld, þegar upp var staðið reyndust örlög þeirra í höndum Hauka sem skelltu KFÍ að Ásvöllum. Annað árið í röð mega Fjölnismenn því sætta sig við 9. sætið í Iceland Express deildinni en þeir gerðu í kvöld allt sem í þeirra valdi stóð til þess að berja sig inn í úrslitakeppnina. Fjölnir lagði sjóðheita ÍR-inga 96-92 og máttu svo bíða í næstum 10 mínútur eftir að úrslit réðust að Ásvöllum þar sem Haukar lögðu KFÍ og tóku 8. sætið í deildinni.
James Bartolotta var iðinn við stigaskorunina í fyrsta leikhluta, setti 11 stig fyrir ÍR-inga en það voru samt Fjölnismenn sem leiddu 22-19 að fyrstu tíu mínútunum loknum.
Eiríkur Önundarson jafnaði metin 22-22 með þriggja stiga körfu í upphafi annars leikhluta og í garð gekk hraður og skemmtilegur leikur. Oft var boðið upp á skemmtilega sóknartilburði en um miðbik leikhlutans seig ÍR aðeins fram úr fyrir tilstilli Sovic sem var að leika vel. ÍR-ingar leiddu svo 40-43 í hálfleik eftir hraðan og fjörugan fyrri hálfleik.
Magni Hafsteinsson og Brandon Brown voru báðir með 9 stig og 6 fráköst í hálfleik hjá Fjölni en hjá ÍR var Bartolotta með 11 stig í hálfleik, öll í 1. leikhluta og Sovic var með 9 stig.
Gulir úr Grafarvogi mættu grimmir inn í þriðja leikhluta, náðu yfirhöndinni en Sveinbjörn Claessen jafnaði metin í 56-56 fyrir ÍR með þriggja stiga körfu. Tómas Heiðar Tómasson lék afspyrnuvel í liði Fjölnis í þriðja leikhluta og raðaði niður stigum en hr. ÍR, Eiríkur Önundarson, leiddi sína menn í leikhlutanum og sá til þess að ÍR hafði yfirhöndina 67-71 fyrir lokasprettinn.
Segja má að stuðningsmenn ÍR hafi fært Fjölni sigurinn í kvöld, að hluta til að minnsta kosti. Bláir í stúkunni voru að kynda Brandon Brown allan leikinn og fyrir vikið hrökk kappinn í gang, var óstöðvandi í teignum, tróð nokkrum sinnum með tilþrifum eins og honum einum er lagið og lauk leik með 32 stig og 9 fráköst.
Í stöðunni 81-78 stakk Fjölnir af, Grafarvogsliðið setti í lás í vörninni og ÍR-ingar komust hvorki lönd né strönd. Þennan leik ætluðu lærisveinar Örvars Kristjánssonar ekki að missa frá sér og náðu að lokum að landa sigri 96-92. Við tók erfið bið en þar sem Haukar rúlluðu yfir KFÍ á lokasprettinum í Hafnarfirði varð sigurbros Fjölnismanna að súrsætri skeifu. Fjölnismenn hafa þó fátt til að skammast sín yfir, afar frambærilegir leikmenn skipa liðið, ungir að árum og ræktaðir í heimahéraði.
ÍR mætir svo Keflavík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en Fjölnismenn eru nú komnir í sumarfrí.
Heildarskor:
Fjölnir: Brandon Brown 32/9 fráköst, Ingvaldur Magni Hafsteinsson 17/8 fráköst, Tómas Heiðar Tómasson 15/7 stoðsendingar, Jón Sverrisson 13/5 fráköst, Ægir Þór Steinarsson 12/9 fráköst/7 stoðsendingar/5 stolnir, Hjalti Vilhjálmsson 4, Sindri Kárason 2, Arnþór Freyr Guðmundsson 1, Einar Þórmundsson 0, Elvar Sigurðsson 0, Leifur Arason 0, Sigurður Þórarinsson 0.
ÍR: Nemanja Sovic 23/7 fráköst, Kelly Biedler 23/17 fráköst, James Bartolotta 19, Sveinbjörn Claessen 9/5 fráköst, Eiríkur Önundarson 8, Níels Dungal 8, Hjalti Friðriksson 2, Davíð Þór Fritzson 0, Vilhjálmur Theodór Jónsson 0, Tómas Aron Viggóson 0, Þorgrímur Emilsson 0, Ásgeir Örn Hlöðversson 0.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Eggert Þór Aðalsteinsson
Ljósmynd/ Þegar þessi mynd var tekin hafði Fjölnir lagt ÍR, Haukar leiddu með 8 stigum að Ásvöllum og allir Fjölnismenn í Dalhúsum að krossa puttana fyrir KFÍ sigri, sú varð ekki raunin.
Mynd og umfjöllun: Jón Björn Ólafsson – [email protected]





