Leikurinn um botnbaráttuna í Iceland Express deild kvenna varð aldrei neinn spennuleikur. Fjölnir fékk skell á heimavelli í þessum síðasta deildarleik sínum í úrvalsdeild þessa leiktíðina en fyrir leikinn var vitað að þær þyrftu að vinna leikinn með 32 stiga mun til þess að halda sæti sínu í deildinni. Þá var einnig á brattann að sækja þar sem Fjölnir sagði upp samningi sínum við Ingu Buzoku eftir leik liðsins gegn Njarðvík á dögunum.
Grindavík byrjaði mun betur sinn leik og hittu vel og fengu góð færi þar sem Fjölnir var með smá pressu í gangi en hún virkaði ekki eins og skyldi og varð til þess að Grindavík fékk opin skot og nokkrar auðveldar körfur. Tasha Harris var með fyrstu 12 stigin hjá Fjölni og svo fóru íslensku stelpurnar að koma stigum á töfluna en Grindavík vann 1 . leikhlutann öruggt 14 -36.
Annar leikhluti var alveg eins, lítið sem breyttist þar og munurinn alltaf þessi 20 stig sem unnust í fyrsta leiklhutanum, hann endaði 33 – 56 fyrir Grindavík.
Leikurinn hélt þessum mun allan tíman og náðu Fjölniskonur aldrei að minnka muninn sem varð til þess að öruggur sigur Grindavíkur á liði Fjölnis um sæti í deildinni var aldrei í hættu, þó svo að Grindavík hefði ekki mætt í leikinn og hann hefði verið dæmdur 20 – 0 hefði það ekki dugað til að Fjölnir hefðu haldið sæti, þær þurftu að vinna með 32 stigum eftir tap í Grindavík í síðasta leik.
Grindavík vann að lokum 66 – 94 .
Fjölnir-Grindavík 66-94 (14-37, 19-19, 19-19, 14-19)
Fjölnir: Natasha Harris 34/12 fráköst/7 stolnir, Bergþóra Holton Tómasdóttir 11/4 fráköst, Birna Eiríksdóttir 6, Bergdís Ragnarsdóttir 4, Eva María Emilsdóttir 4, Erna María Sveinsdóttir 3, Margrét Loftsdóttir 2, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 2.
Grindavík: Janese Banks 32/6 fráköst, Agnija Reke 13/5 fráköst/7 stoðsendingar, Helga Hallgrímsdóttir 11/14 fráköst, Berglind Anna Magnúsdóttir 9, Ingibjörg Yrsa Ellertsdóttir 9, Heiða B. Valdimarsdóttir 6, Harpa Hallgrímsdóttir 6, Eyrún Ösp Ottósdóttir 3, Alexandra Marý Hauksdóttir 3, Katrín Ösp Rúnarsdóttir 2.
Umfjöllun og mynd: Karl West





