HomeFréttirFinnur : Við erum með frábæra aðdáendur

Finnur : Við erum með frábæra aðdáendur

 Finnur Freyr Stefánsson var að vonum ánægður með sína menn sem tryggðu sér deildarmeistaratitilnn í Domonisdeild Karla í kvöld með 14 stiga sigri á Skallagrím,90-76.  
 
“Það vantar einn besta skorara í íslensku körfubolta í hitt liðið og það auðveldar aðeins málin.  Við vorum búnir að undirbúa okkur fyrir það að vera með hann á móti okkur og gera ráðstafanir gegn honum.  Það má því segja að það hafi verið ákveðin vonbrigði að hann hafi ekki spilað í kvöld.  ”
 

Menn geta þó leyft sér að fagna örlítið í kvöld þó enginn bikar hafi farið á loft? 

“Jú engin spurning, við erum með efsta sætið og erum búnir að sýna það að við erum jafnir og flottir út allt tímabilið.  Við erum búnir að ganga í gegnum breytingar á leikmönnum í allan vetur og hópurinn er ekki að koma saman fyrr en fyrst núna þannig að það er gríðarlega sterkt að vera búnir að ná þessum árangri þegar tveir leikir eru eftir. Sérstaklega þegar keppnin er hörð í þessari deild”.  

 

Eins og deildin hefur spilast í vetur þá hafa líklega ekki verið margir auðveldir leikir? 

“nei, Það koma kannski alltaf inn einhverjir auðveldir en núna sérstaklega eftir áramót hafa öll lið stigið upp og það hefur enginn leikur verið þægilegur eftir áramót.  Og það verður enginn leikur þægilegur héðan í frá”.  

 

Hvernig legst svo úrslitakeppnin í KR ?

“Bara vel, við þurfum að æfa vel og undirbúa okkur.  Laga nokkur atriði og svo erum við bara klárir.  Það eru leikir á móti Val og Haukum eftir sem við ætlum að mæta af krafti í og reyna að undirbúa okkur eins vel og hægt er.  Okkur bara hlakkar til”.

 

Heimavallarétturinn sem þið hafið tryggt ykkur hlítur að gefa ykkur mikið, ekki satt? 

“Engin spurning, okkur líður vel hérna í DHL höllinni og hérna viljum við vera.  Við erum með frábæra aðdáendur og fólk sem mætir.  Stemmingin hérna í þessu húsi er ólýsanleg, gott dæmi er leikurinn í Keflavík hérna um daginn.  Við erum mjög sáttir með að halda heimavallaréttinum út úrslitakeppnina en til þess að hann nýtist okkur verðum við að standa okkur.  Það þýðir ekkert að fagna heimavallarétti ef menn ætla svo að mæta eins og bjánar”,

 

[email protected]

Mynd úr safni : JBO

Fréttir
- Auglýsing -