Finnur Jónsson, þjálfari Skallagríms, var sáttur með margt í leik sinna manna eftir naumt tap gegn Val á Hlíðarenda í kvöld og býst við hörku rimmu milli tveggja góðra liða. Skallagrímur byrjaði leikinn hins vegar ekki nógu vel og voru strax komnir 11 stigum undir eftir fyrsta leikhluta sem þeir þó svöruðu mjög vel strax í upphafi annars leikhluta.
"Í upphafi gátum við náttúrulega ekki haldið þeim fyrir framan okkur til að bjarga lífi okkar. Þeir dræfuðu á okkur villevek og sköpuðu þar af leiðandi alltaf eitthvað. Svo fórum við í svæði, ég man ekki hvort það var í öðrum eða þriðja leikhluta. Það gekk bara nokkuð vel, heilt yfir var ég bara nokkuð ánægður með það. Við vorum í basli að skora körfur, það sést því við vorum að skora 74 stig, við erum ekki vanir því. Við vorum í basli með að skora".
Næstu leikur liðanna verður í Borgarnesi föstudaginn 1. apríl næstkomandi og ljóst eftir leiki liðanna í vetur og leik kvöldsins að þar verður barist til síðasta blóðdropa til þess að ná sigrinum. "Við gerum allt til þess. VIð vissum það náttúrulega að þetta yrði hörku sería, þetta eru tvö jöfn lið, þeir eru með frábæran þjálfara og hörku lið. Þannig að við vissum alveg að við værum að fara að spila á móti góðu liði. Það verða bara að mætast stálin stinn. VIð vitum að við erum með gott lið líka þannig að við mætum bara tvíefldir til leiks á heimavelli".
Undirritaður hafði orð á því við Finn að mögulega hefði Valur forskot á Skallagrím hvað stærð varðar en Finnur vildi ekki meina að það væri vandamál. "Nei, þeir eru vissulega stærri í cm en við erum með stærra hjarta. Við ætlum okkur að vinna næsta leik, við hugsum bara um næsta leik og það er leikur sem við ætlum að vinna".
Gísli Ólafsson
mynd: JBO




