spot_img
HomeSubway deildinSubway deild karlaFinnur Freyr áfram með Valsmenn

Finnur Freyr áfram með Valsmenn

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, hefur gert nýjan þriggja ára samning við félagið, en þetta staðfesti Svali Björgvinsson formaður körfuknattleiksdeildar í samtali við Vísi í dag.

Finnur Freyr, sem hefur stýrt Val frá árinu 2020, gerði liðið að Íslandsmeisturum karla síðasta vor, en Valur hafði ekki unnið titilinn í 39 ár fram að því. Þar áður þjálfaði Finnur Freyr lið Horsens í Danmörku, auk þess sem hann átti afar farsælan feril sem þjálfari KR.

Fréttir
- Auglýsing -