spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaFimm semja við Njarðvík til næstu tveggja ára

Fimm semja við Njarðvík til næstu tveggja ára

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur gerði nýverið fimm nýja samninga við unga og efnilega leikmenn til næstu tveggja ára. Leikmennirnir fimm sem um ræðir eru þær Helena Rafnsdóttir, Vilborg Jónsdóttir, Anna Lilja Ásgeirsdóttir, Sigurveig Sara Guðmundsdóttir og Lára Ösp Ásgeirsdóttir.

Allar fimm komu við sögu í 1. deild kvenna í vetur en þó í mismiklu mæli en dagskráin var þétt hjá þeim á tímabilinu með 10. flokk, stúlknaflokk og meistaraflokki kvenna.

Þess má einnig geta að Vilborg var á dögunum valin besti ungi leikmaðurinn í 1. deild kvenna. 

Mynd: Kristín Örlygsdóttir formaður KKD UMFN ásamt Helenu Rafnsdóttur, Önnu Lilju og Láru Ösp Ásgeirsdætrum, Vilborgu Jónsdóttur og Sigurveigu Söru Guðmundsdóttur.

Fréttir
- Auglýsing -