Tveir leikir eru í úrslitakeppni 1. deildar karla í kvöld. Í Dalhúsum taka heimamenn í Fjölni á móti Hamri. Fyrir leikinn er staðan jöfn 1-1 og því má búast við hörkuleik. Ekki verður spennan minni í hinum leik kvöldsins, þar sem að Valur tekur á móti Breiðablik. Valur komnir í þægilega 2-0 forystu í einvíginu og geta með sigri í kvöld sent Blika í snemmbúið sumarfrí.
Leikir dagsins:
Úrslitakeppni 1. deild karla:
Fjölnir Hamar – kl. 19:15
Valur Breiðablik – kl. 19:30