HomeFréttirFannar frá næstu 4-5 vikurnar

Fannar frá næstu 4-5 vikurnar

 
Miðherjinn Fannar Ólafsson verður frá leik með bikarmeisturum KR næstu 4-5 vikurnar þar sem hann er brotinn á þumalfingri. Fannar meiddist á æfingu fyrir leikinn gegn Tindastól í síðustu umferð en spilaði engu að síður leikinn gegn Stólunum í Síkinu. Nú er komið að því að hvíla fingurinn.
,,Tímasetningin hefði mátt vera betri,“ sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari KR um málið en við kefli Fannars hjá KR taka þeir Finnur Magnússon, Jón Orri Kristjánsson og Hreggviður Magnússon og bíður þeirra ærinn starfi enda leikur framundan gegn Grindavík, svo ÍR og í síðustu umferð tekur KR á móti Snæfell og allt útlit fyrir að Fannar missi a.m.k. af þessum leikjum.
 
Fréttir
- Auglýsing -