8 liða úrslit lokamóts EuroBasket fara af stað í Istanbul í dag með tveimur leikjum. Í fyrri leik dagsins mæta Evrópumeistarar Spánar liði Þýskalands kl. 15:45. Í seinni leiknum mætast Lettland og Slóvenía kl. 18:30. Báðir eru leikirnir í beinni útsendingu á RÚV og RÚV2.
Leikir dagsins:
Þýskaland Spánn – 15:45 í beinni á RÚV
Slóvenía Lettland – 18:30 í beinni á RÚV 2




